Vfend
Sveppalyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Vórikónazól
Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. nóvember, 2002
Vfend inniheldur virkaefnið vórikónazól sem er breiðvikt tríazól sveppalyf. Aðalverkunarháttur vórikónazóls er að hindra skref í framleiðslu eins efnis í frumuhimnu sveppsins sem hindrar vöxt þeirra. Vórikónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er meðal annars notað við sveppasýkingum í blóði og alvarlegum ífarandi candidasýkingum. Lyfið ætti fyrst og fremst að nota hjá sjúklinum með versnandi og hugsanlega banvæna sýkingu. En lyfið hefur einnig verið notað sem fyrirbyggjandi meðferð gegn ífarandi sveppasýkingu hjá sjúklingum í miklli áhættu sem fengið hafa ígræðslu ósamgena blóðmyndandi stofnfrumna.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Mixtúra og innrennslisstofn
Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 400mg á 12 klst fresti fyrstu 24 klst og 200mg 2svar á sólahring eftir það
Börn 2-12 ára fá ekki hleðsluskammt til inntöku en viðhaldsskammtur er 9mg/kg 2svar á dag
Innrennslislyfið er eingöngu notað á sjúkrahúsum. Mixtúran hristist fyrir notkun
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar að virka innan nokkurra klst. Misjafnt er hvenær áhrifin koma fram, eða eftir því hvaða sveppategund veldur sýkingu, hvar sýkingin er og hvaða lyfjaform er notað.
Verkunartími:
Er skammtaháð en helmingunartími er u.þ.b. 6 klst
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Ekki þörf á breyttu mataræði en lyfið skal tekið 1klst fyrir eða eftir máltíð
Geymsla:
Geymist við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Blönduð mixtúra geymist í 14 daga.
Ef skammtur gleymist:
Ef skammtur gleymist á að taka þann næsta á réttum tíma. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymist
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýking nái sér aftur upp
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Metið af lækni
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Andnauð | |||||||
Bjúgur á útlimum | |||||||
Heyrnaskerðing | |||||||
Kviðverkir | |||||||
Liðbólgur, liðverkir | |||||||
Ógleði, uppköst, niðurgangur | |||||||
Sjónskerðing | |||||||
Sótthiti | |||||||
Útbrot | |||||||
Ofnæmisviðbrögð s.s. útbrot, kláði, öndunarerfiðleikar, hiti ásamt eitlastækkunum. |
Milliverkanir
Mjög mörg lyf geta haft áhrif á verkun lyfsins. Mikilvægt er að læknir sem stjórnar meðferðinni viti um öll lyf sem þú tekur, þar með talin lyf sem hægt er að kaupa án lyfseðils. Samtímis notkun Jóhannesarjurtar getur dregið úr áhrifum lyfsins
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Adalat Oros
- Afinitor
- Brilique
- Buccolam
- Bufomix Easyhaler
- Certican
- Clopidogrel Actavis
- Clopidogrel Krka
- Colchicine Tiofarma
- Colrefuz
- Cortiment
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- DuoResp Spiromax
- Emselex
- Entocort
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Everolimus WH
- Ezetimib/Simvastatin Krka
- Felodipine Alvogen
- Grepid
- Inegy
- Inspra
- Ivabradine Accord
- Lerkanidipin Actavis
- Logimax
- Logimax forte
- Lynparza
- Midazolam Medical Valley
- Moventig
- Multaq
- Paxlovid
- Procoralan
- Pulmicort
- Pulmicort Turbuhaler
- Quetiapin Actavis
- Quetiapin Krka
- Quetiapin Medical Valley
- Quetiapin Viatris
- Quetiapine Alvogen
- Rapamune
- Relpax
- Revastad
- Revatio
- Rimactan
- Salmeterol/Fluticasone Neutec
- Salmex
- Seretide
- Serevent
- Seroquel Prolong
- Sildenafil Actavis
- Sildenafil Actavis (Heilsa)
- Sildenafil Medical Valley
- Simvastatin Actavis
- Simvastatín Alvogen
- Simvastatin Bluefish
- Symbicort (Lyfjaver)
- Symbicort forte Turbuhaler
- Symbicort mite Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler (Heilsa)
- Symbicort Turbuhaler (Lyfjaver) Noregur
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Ticagrelor Krka
- Trixeo Aerosphere
- Viagra
- Vizarsin
Getur haft áhrif á
- Abstral
- Adempas
- Adempas (Abacus Medicine)
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Alfuzosin hydrochlorid ratiopharm
- Alprazolam Krka
- Alprazolam WH (hét áður Alprazolam Mylan)
- Amló
- Amlodipin Bluefish
- Amlodipin Medical Valley
- Amlodipin Zentiva
- Amlodipine Vitabalans
- Aprepitant Medical Valley
- Aprepitant STADA
- Atorvastatin Xiromed
- Atozet
- Avamys
- Bosulif
- Buprenorphine Alvogen
- Cardosin Retard
- Carduran Retard
- Cialis
- Cinacalcet STADA
- Cinacalcet WH
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Dabigatran Etexilate Accord
- Dabigatran etexilate Krka
- Dailiport
- Depo-Medrol
- Detrusitol Retard
- Dexametason Abcur
- Dexamethasone hameln
- Dexamethasone Krka
- Dexavit
- Diacomit Lyfjaver
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Dostinex
- Doxazosin Krka
- Duodart
- Duta Tamsaxiro
- Dutaprostam
- Dutasteride Medical Valley
- Dutasteride Sumar Pharma
- Dutasteride/Tamsulosin Teva
- Dymista
- Eliquis
- Eliquis (Abacus Medicine)
- Eliquis (Lyfjaver)
- Emend
- Esomeprazol Actavis
- Esomeprazol Krka
- Esomeprazol Krka (Heilsa)
- Esomeprazole Jubilant
- Exforge
- Fentanyl Actavis
- Fentanyl Alvogen
- Fesoterodine Medical Valley
- Fesoterodine Teva
- Flixotide
- Flucloxacillin WH
- Fluticasone Alvogen (áður Nasofan)
- Fluticasone propionate - forskriftarlyf
- Flutiform
- Glimeryl
- Ikervis
- Imatinib Accord
- Imatinib Krka d.d.
- Immex
- Imodium
- Imodium (Heilsa)
- Imomed
- Imovane
- Intuniv
- Kestine
- Klacid
- Leptanal
- Lipistad
- Lixiana
- Loperamide Medical Valley
- Modigraf
- Navelbine
- Nexium
- Nexium (Heilsa)
- Nexium (Lyfjaver)
- Norspan
- Norvasc
- Omeprazol Actavis
- Omeprazol Alvogen (áður Omeprazol ratiopharm)
- Omeprazol Medical Valley
- Omnic
- Otrason
- Oxikodon Depot Actavis
- Oxycodone Alvogen
- Oxycodone/Naloxone Alvogen
- OxyContin Depot
- OxyNorm
- OxyNorm Dispersa
- Paxlovid
- PEDIPPI
- Pradaxa
- Prograf
- Protopic
- Qlaira
- Relvar Ellipta
- Rivaroxaban WH
- Salmeterol/Fluticasone Neutec
- Salmex
- Sandimmun Neoral
- Seretide
- Solifenacin Alvogen
- Solifenacin Krka
- Soltamcin
- Solu-Medrol
- Stesolid
- Suboxone
- Tadalafil Krka
- Tadalafil Mylan
- Tafil
- Tafil Retard
- Tamsulosin Medical
- Tamsulosin Viatris
- Targin
- Tavneos
- Toviaz
- Trelegy Ellipta
- Venclyxto
- Vesicare
- Vinorelbin Actavis
- Vinorelbine Alvogen
- Visanne
- Warfarin Teva
- Xarelto
- Xeljanz
- Zarator
- Zopiclone Actavis
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með einhvern hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
- þú sért með skerta starfsemi nýrnahettna
Meðganga:
Má ekki nota á meðgöngu
Brjóstagjöf:
Má ekki nota við brjóstagjöf
Börn:
Skammtar háðir líkamsþyngd fyrir born eldri en 2ja ára
Eldra fólk:
Ekki er þörf á að breyta skömmtum
Akstur:
Getur haft áhrif á sjón og því æskilegt að forðast akstur
Áfengi:
Forðast skal áfengi þar sem það getur aukið líkur og alvarlegum lifrarskaða
Íþróttir:
Lyfir er leyft við æfingar og í keppni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.