Aprepitant STADA
Lyf við uppköstum og ógleði | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Aprepitant
Markaðsleyfishafi: STADA Arzneimittel | Skráð: 1. nóvember, 2021
Aprepitant STADA inniheldur virkaefnið aprepitant sem er notað til að fyrirbyggja ógleði og uppköst í tengslum við krabbameinslyfjameðferð hjá fullorðnum og unglingum yfir 12 ára, þetta lyf er notað sem hluti meðferðar sem felur í sér barkstera og 5-HT3 viðtakablokka (t.d. dexametasón og ondansetron). Aprepitant virkar með því að hindra substance P NK1 viðtaka sem finnst t.d. í meltingarvegi og hefur verið sýnt að valdi uppköstum af völdum krabbameinslyfjamerðferðar
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Hylki
Venjulegar skammtastærðir:
125mg 1 klst áður en krabbameinslyfjameðferð hefst og 80mg næstu tvo morgna.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
eftir u.þ.b. 4 klst
Verkunartími:
u.þ.b. 9-13 klst
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
ekki er þörf á breyttu mataræði
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorti ná til né sjá
Ef skammtur gleymist:
Leitast skal ráða hjá lækni ef skammtur gleymist.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta á lyfinu með með samráði við lækni
Ef tekinn er of stór skammtur:
Sé tekið of stór skammtur af lyfinu eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, hjúrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222)
Langtímanotkun:
Aprepitant er ekki notað sem langtímameðferð
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Hiksti | ![]() |
![]() |
|||||
Höfuðverkur | ![]() |
![]() |
|||||
Minnkuð matarlyst | ![]() |
![]() |
|||||
Truflun á bragðskyni | ![]() |
![]() |
|||||
Þreyta | ![]() |
![]() |
|||||
Ofnæmisviðbrögð s.s. útbrot, kláði, öndunarerfiðleikar, hiti ásamt eitlastækkunum. | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
Meðganga:
Ekki ætlað til notkunar á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri
Brjóstagjöf:
Ekki ráðlagt
Börn:
Ekki ætlað börnum yngri en 12 ára
Eldra fólk:
Ekki er þörf á að breyta skömmtum
Akstur:
Getur haft lítil áhrif á akstur
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.