Kliogest
Kvenhormón | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Estradíól Noretísterón
Markaðsleyfishafi: Novo Nordisk | Skráð: 1. október, 1986
Kliogest inniheldur tvö virk efni, estradíól og noretísterón. Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Við tíðahvörf minnkar framleiðsla hormónanna estradíóls og prógesteróns og því fylgja ýmis óþægindi. Meðferð með Kliogest miðar að því að vega upp hormónaskortinn og slá á einkenni af völdum tíðahvarfa. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar einnig líkur á beinþynningu þar sem estradíól stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina. Lyfið er því líka gefið konum sem hætta er á að fái beinþynningu að tíðahvörfum loknum. Noretísterón er samtengt hormón með sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Hér er það gefið með estradíóli allan tímann sem meðferð varir til að hindra ofvöxt í slímhimnu legsins. Lyfið viðheldur hins vegar ekki reglulegum tíðablæðingum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
1 tafla á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar takist inn með vatnsglasi. Hver tafla inniheldur 2 mg estradíól og 1 mg noretísterón.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif koma fram á fyrsta mánuði meðferðar og einkenni hormónaskorts hverfa á nokkrum vikum eða mánuðum.
Verkunartími:
Um 1 sólarhringur eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef fleiri en 36 klst. líða frá síðasta skammti skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta skal töku lyfsins í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru blæðingatruflanir, s.s. milliblæðingar og blettablæðingar og koma fram hjá um 10-30% kvenna sem taka lyfið. Þetta er algengast á fyrstu mánuðum meðferðar.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Bakverkir | |||||||
Blæðingatruflanir | |||||||
Breytingar í brjóstum | |||||||
Eymsli í brjóstum, brjóstastækkun | |||||||
Gula | |||||||
Háþrýstingur | |||||||
Höfuðverkur, ógleði | |||||||
Kviðverkir | |||||||
Sinadráttur | |||||||
Útbrot og mikill kláði | |||||||
Útferð | |||||||
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti | |||||||
Þunglyndi | |||||||
Þyngdaraukning, bjúgur |
Milliverkanir
Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Amoxicillin Sandoz
- Amoxicillin Viatris
- Amoxicillin/Clavulanic Acid Normon
- Amoxin
- Apidra
- Aprepitant Medical Valley
- Aprepitant STADA
- Azithromycin STADA
- Azitromicina Normon
- Azyter
- Braftovi
- Carvedilol STADA
- Cefotaxim Navamedic
- Cefuroxim Fresenius Kabi
- Cefuroxim Navamedic
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Ciprofloxacin Alvogen
- Ciprofloxacin Navamedic
- Circadin
- Clarithromycin Krka
- Clindamycin EQL Pharma
- Cloxabix
- Cloxacillin Navamedic
- Cloxacillin Vital Pharma Nordic
- Cotrim
- Dailiport
- Dalacin
- Decortin H
- Decutan
- Dicloxacillin Bluefish
- Doxycyklin EQL Pharma
- Doxylin
- Eusaprim
- Flagyl
- Flucloxacillin WH
- Furadantin
- Genotropin
- Gentamicin B. Braun
- Haiprex
- Idotrim
- Ikervis
- Isotretinoin ratiopharm
- Kåvepenin
- Kåvepenin Frukt
- Keflex
- Klacid
- Lamictal
- Lamotrigin ratiopharm (Lyfjaver)
- Melatonin Bluefish
- Melatonin Evolan
- Melatonin Teva
- Melatonin Vitabalans
- Metronidazol Actavis
- Metronidazol Baxter Viaflo
- Metronidazol Normon
- Modigraf
- Neotigason
- Norditropin FlexPro
- Omnitrope
- Oracea
- Orfiril
- Orfiril Retard
- Oxcarbazepin Jubilant
- Paxlovid
- Penomax
- Prednisolon - forskriftarlyf
- Prednisolon EQL Pharma
- Prednisolone Actavis
- Prograf
- Qsiva
- Rimactan
- Rivotril
- Rosuvastatin Krka
- Rosuvastatin Teva
- Rosuvastatin Xiromed
- Saizen
- Sandimmun Neoral
- Selexid
- Síprox
- Slenyto
- Spectracillin
- Staklox
- Tamoxifen Mylan
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Topimax
- Topiramat Actavis
- Topiramate Alvogen
- Trileptal
- Trimetoprim Meda
- Warfarin Teva
- Zinacef
- Zitromax
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með astma
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
Meðganga:
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Lyfið á ekki að nota samhliða brjóstagjöf.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.