Dicloxacillin Bluefish

Sýklalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Díkloxacillín

Markaðsleyfishafi: Bluefish | Skráð: 1. ágúst, 2015

Díkloxacillín er pensilínsamband. Lyfið hefur áhrif á vissar tegundir baktería sem hafa myndað ónæmi fyrir öðrum pensilínsamböndum, og það er notað við sýkingum af völdum þeirra. Bakteríutegundir sem hafa ekki myndað þetta ónæmi eru almennt viðkvæmari fyrir öðrum pensilínsamböndum en díkloxacillíni og því ætti ekki að nota díkloxacillín við sýkingum af völdum þeirra. Díkloxacillín þolist yfirleitt vel. Það getur þó, eins og önnur pensilínlyf, valdið miklum ofnæmisviðbrögðum. Einkenni á borð við hita, bólgna tungu eða háls og öndunarerfiðleika gefa venjulega til kynna að viðkomandi hafi ofnæmi fyrir öllum pensilínsamböndum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 1-2 g á sólarhring. Börn: 25 mg á hvert kg líkamsþyngdar á sólarhring. Lyfið nýtist betur ef það er tekið á fastandi maga, 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir máltíð.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 1 klst.

Verkunartími:
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Taktu síðan það sem eftir er af dagskammtinum með reglulegu millibili. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Díkloxacillín er venjulega aðeins gefið í skamman tíma í senn.


Aukaverkanir

Um 5% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum aukaverkunum. Algengastar eru ógleði, uppköst og niðurgangur.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Meltingartruflanir, uppþemba          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir pensilínlyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Minni skammtar eru notaðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.