Doxylin

Sýklalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Doxýcýklín

Markaðsleyfishafi: Actavis | Skráð: 1. október, 2008

Doxýcýklín tilheyrir flokki tetracýklín sýklalyfja. Sýklalyf í þessum flokki eru breiðvirk, þ.e. þau virka á margar tegundir sjúkdómsvaldandi baktería. Þau eru notuð við sýkingum af völdum baktería sem eru næmar fyrir lyfjunum, en doxýcýklín er oftast notað við sýkingum í öndunarfærum, húð, þvagfærum eða meltingarvegi. Doxýcýklín virkar í flestum tilfellum á klamydíusýkingar og oft á þrymlabólur. Doxýcýklín og önnur tetracýklín lyf geta skaðað vöxt tanna og beina. Lyfið er því ekki gefið þunguðum konum eða börnum undir 8 ára aldri. Doxýcýklín veldur síður óþægindum í meltingarvegi en önnur lyf í þessum flokki, og sé það tekið með mat minnka enn frekar líkurnar á aukaverkunum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur doxýcýklín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans. Því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 100-200 mg á dag. Börn 8-12 ára: 2,2-4,4 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Töflurnar takist með vatnsglasi eða mat. Má ekki taka þær inn útafliggjandi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Verkunartími:
24 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Doxýcýklín er venjulega ekki notað lengi í senn.


Aukaverkanir

Allt að 10% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum af aukaverkunum þess. Í flestum tilfellum eru það óþægindi frá meltingarvegi, en hægt er að draga úr þeim með því að taka lyfið með mat.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Lystarleysi          
Mislitun glerungs hjá börnum          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Kalk, þ.m.t. mjólk, og járn verður að taka a.m.k. 3 klst. fyrir inntöku doxylins eða 1 klst eftir.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir tetracýklín lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Lyfið getur aukið líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur fræðilega haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 8 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Getur dregið úr áhrifum lyfsins, sérstaklega hjá áfengissjúklingum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Sólarljós eykur líkur á ljósnæmi meðan á meðferð stendur.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.