Nexium (Lyfjaver)
Lyf við sársjúkdómi | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Esómeprazól
Markaðsleyfishafi: Lyfjaver | Skráð: 1. maí, 2019
Virka efnið esómeprazól dregur úr myndun á magasýru. Það er notað við bólgu í vélinda af völdum bakflæðis magasýru og líka við einkennum sjúkdóma af völdum bakflæðis frá maga í vélinda. Lyfið þykir henta í langtímameðferð til að koma í veg fyrir að bólga í vélinda, sem hefur verið læknuð, taki sig upp að nýju. Auk þess er esómeprazól notað ásamt sýklalyfjum við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter pylori-sýkingu veldur hún endurteknum maga- og skeifugarnarsárum, en til þess að vinna á bakteríunni þarf bæði sýklalyf og lyf sem draga úr magasýruframleiðslu. Esómeprazól hindrar seyti magasýru úr sýrumyndandi frumum. Með því dregur það úr framleiðslu magasýrunnar.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Sýruþolnar töflur og mixtúrukyrni til inntöku og stungulyf í æð.
Venjulegar skammtastærðir:
20-40 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja. Mixtúrukyrnið er blandað út í vatn og drukkið. Hvorki má tyggja né mylja kyrnin. Stungulyfið er eingöngu notað á sjúkrahúsum.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif á losun magasýru koma fram innan 1 klst.
Verkunartími:
Um 24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum upprunalegum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Þó er æskilegt að sjúklingar í langtímameðferð séu undir reglulegu eftirliti hjá lækni.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir esómeprazóls eru höfuðverkur og óþægindi í meltingarvegi. Aukaverkanir lyfsins eru ekki taldar vera skammtaháðar, þ.e. það eru ekki meiri líkur á því að þær komi fram þótt skammtar séu stærri.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Kviðverkir, uppþemba | |||||||
Niðurgangur, hægðatregða | |||||||
Ógleði og uppköst | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar |
Milliverkanir
Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og ginkgo geta dregið úr virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Alprazolam Krka
- Alprazolam WH (hét áður Alprazolam Mylan)
- Anafranil
- Aspendos
- Bosulif
- Candizol
- Cibinqo
- Cipralex
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Clopidogrel Actavis
- Clopidogrel Krka
- Dailiport
- Diacomit Lyfjaver
- Diflucan
- Doxycyklin EQL Pharma
- Doxylin
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Gentamicin B. Braun
- Grepid
- Klacid
- Klomipramin Viatris
- Modafinil Bluefish
- Modigraf
- Modiodal
- Oracea
- Oropram
- Prograf
- Sporanox
- Stesolid
- Tafil
- Tafil Retard
- Vfend
- Voriconazole Accord
- Warfarin Teva
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Mixtúrukyrnið eru ætlað börnum, 1-11 ára. Það er ekki ætlað börnum sem eru yngri en 1 árs eða léttari en 10 kg. Töflurnar eru ekki ætlaðar börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Getur ert magaslímhúð. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Mixtúrukyrni hentar þeim sem eiga erfitt með að gleypa töflur.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.