Azitromicina Normon
Sýklalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Azitrómýcín
Markaðsleyfishafi: Laboratorios Normon | Skráð: 1. mars, 2019
Azitromicina Normon inniheldur virka innihaldsefnið azithromicin og er breiðvirkt sýklalyf. Það tilheyrir flokki sýklalyfja sem kallast makrólíðar, en lyf í þessum flokki hindra vöxt baktería með því að stöðva próteinframleiðslu þeirra. Verkunarsvið lyfsins er svipað og annarra lyfja í sama flokki. Helsti kostur azitromicins fram yfir skyld lyf er sá að verkunartími þess er svo langur að það dugar að taka það lyfið einu sinni á dag. Azitromicin er notað við sýkingum af völdum baktería t.d. í öndunarfærum, hálsi eða húð, og klamydíusýkingum í kynfærum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur azitrómýcín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans. En því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 500 mg á dag í 3 daga. Við klamydíu og lekanda: 1000 mg í einum skammti.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 2-3 klst.
Verkunartími:
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist við herbergishita í lokuðum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur á strik og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal tafarlaust hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Hafið umbúðir lyfsins við höndina. Einkenni ofskömmtunar eru heyrnartap, ógleði eða uppköst og niðurgangur.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.
Langtímanotkun:
Azitrómýcín er aðeins notað nokkra daga í senn.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru óþægindi frá meltingarvegi, sem allt að 10% þeirra sem taka lyfið finna fyrir.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur | |||||||
Kviðverkir | |||||||
Langvarandi og blóðugur niðurgangur | |||||||
Ógleði, uppköst, niðurgangur | |||||||
Tímabundin heyrnarskerðing | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar |
Milliverkanir
Láta ætti líða a.m.k. 2 klst. milli þess sem sýrubindandi lyf og azitrómýcín eru tekin.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Abstral
- Activelle
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Asubtela
- Cerazette
- Cleodette
- Cordarone
- Cypretyl
- Dailiport
- Depo-Provera
- Desirett
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- Drovelis
- Estring
- Estrofem 1 mg
- Estrofem 2 mg
- Estrogel
- Evorel Sequi
- Evra
- Femanest
- Fentanyl Actavis
- Fentanyl Alvogen
- Gestrina
- Harmonet
- Ikervis
- Jaydess
- Kestine
- Kliogest
- Kyleena
- Lenzetto
- Leptanal
- Levonorgestrel ABECE (Heilsa)
- Levonorgestrel Apofri
- Levosert
- Levosertone
- Melleva
- Mercilon
- Microgyn
- Microstad
- Mirena
- Modigraf
- Multaq
- Nexplanon
- Novofem
- NuvaRing
- Ornibel
- Ovestin
- Postinor
- Primolut N
- Prograf
- Qlaira
- Rewellfem
- Ryego
- Sandimmun Neoral
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Trisekvens
- Vagidonna
- Vagifem
- Visanne
- Vivelle Dot
- Warfarin Teva
- Yasmin
- Yasmin 28
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með ofnæmi fyrir öðrum sýklalyfjum af flokki makrólíða
- þú sért með sjúkdóm sem getur valdið hjartsláttartruflunum
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk. Meta þarf hugsanlegan ávinning gagnvart hugsanlegri áhættu fyrir barnið.
Börn:
Töflurnar eru ekki ætlaðar börnum léttari en 45 kg.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.