Dexametason Abcur
Barksterar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Dexametasón
Markaðsleyfishafi: Abcur | Skráð: 1. nóvember, 2013
Dexametasón er notað við bólgusjúkdómum, ofnæmiseinkennum og til að hafa stjórn á starfsemi nýrnahettubarkar og heiladinguls. Lyfið bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið, og hefur almennt sömu áhrif og svokallaðir sykursterar sem myndast í nýrnaberki. Lyfið er tekið inn við sjúkdómum sem valda miklum eða langvarandi bólgum og geta skemmt vefi líkamans með tímanum. Sjúkdómar sem valda þessum einkennum eru t.d. gigtsjúkdómar, astmi, alvarlegt ofnæmi og húðsjúkdómar. Unnt er að nota lyfið til almennrar ónæmisbælingar þegar hennar er þörf eins og eftir líffæraflutning. Dexametasón er einnig notað í meðferð t.d. bólgu í tengslum við krabbameinssjúkdóma og til að koma í veg fyrir uppköst í meðferð með frumhemjandi lyfjum. Dexametasón er notað við heilabjúg og bólgu í heila vegna heilaæxlis.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Upphafsskammturinn er á milli 0,5 og 8 mg á dag, eftir því hvaða sjúkdóm er verið að meðhöndla. Alvarlegri sjúkdómar kunna að þarfnast stærri skammta en 8 mg. Upphafsskammtinum má halda óbreyttum eða aðlaga þar til svörun sjúklingsins er fullnægjandi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar mjög fljótt að virka en nokkrir dagar geta liðið þangað til að einkenni sjúkdóms byrja að hjaðna.
Verkunartími:
Allt að 54 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Mælt er með nægjanlegri neyslu á kalki og D-vítamíni á meðan meðferð stendur. Sérstaklega ef notaðir eru stórir skammtar til lengri tíma.
Geymsla:
Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef lyfið hefur verið tekið í langan tíma þarf að minnka skammta smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Aukaverkanir eru tíðari eftir því sem lyfið er tekið í hærri skömmtum og lengur. Auk þess getur langtímanotkun leitt til vaxtarstöðvunar hjá börnum, sykursýki, gláku og beinþynningar. Skömmtum er haldið í lágmarki til að draga úr líkum á þessum áhrifum.
Aukaverkanir
Þrátt fyrir víðtæk áhrif dexametasóns í líkamanum er lítil hætta á aukaverkunum þegar lyfið er notað í skamman tíma, jafnvel þótt stórir skammtar séu notaðir. Hættan eykst við langvarandi meðhöndlun.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Beinþynning | |||||||
Bjúgur, hækkaður blóðþrýstingur | |||||||
Fitusöfnun í andliti og á bol | |||||||
Skapgerðarbreytingar | |||||||
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi | |||||||
Sýkingar og sár gróa hægar | |||||||
Sykursýki versnar og dulin sykursýki getur brotist fram | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | |||||||
Vaxtarhömlun hjá börnum | |||||||
Vöðva- og húðrýrnun |
Milliverkanir
Dexametasón getur haft áhrif á virkni annarra lyfja, t.d. flogaveikilyf, getnaðarvarnarlyf, bólgueyðandi gigtarlyf, lyf við sykursýki, lyf við gláku, ýmis hjartalyf, þvagræsislyf, lyf við malaríu, hægðalosandi lyf og önnur ónæmisbælandi lyf. Bólusetningar og ónæmisaðgerðir ætti að forðast samhliða meðferð á barksterum í háum skömmtum. Barksterar geta valdið blóðsykurshækkun og getur því þurft að leiðrétta skammta sykursýkislyfja. ATH!
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Alvofen Express
- Apidra
- Aprepitant Medical Valley
- Aprepitant STADA
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Bisbetol
- Bisoprolol Medical Valley
- Carvedilol Alvogen (áður Carveratio)
- Carvedilol STADA
- CitraFleet
- Deferasirox Accord
- Diamicron Uno
- Diclomex
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Dimax Rapid
- Emend
- Ephedrine Sintetica
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Fiasp
- Furix
- Furosemide Kalceks
- Genotropin
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Hypotron
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Imatinib Accord
- Imatinib Krka d.d.
- Impugan
- Inspra
- Laxoberal
- Laxoberal (Heilsa)
- Metadon 2care4
- Metadon Abcur
- Midodrin Evolan
- Modifenac
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Nexavar
- Norditropin FlexPro
- Novo Mix 30 Penfill
- NovoMix 30 FlexPen
- NovoRapid
- NovoRapid FlexPen
- NovoRapid Penfill
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Omnitrope
- Parapró
- Paxlovid
- Picoprep
- Rimactan
- Saizen
- Sorafenib STADA
- Sporanox
- Strefen
- Strefen (Heilsa)
- Strefen Apelsin (Heilsa)
- Strefen Honung & Citron
- Strefen Orange Sukkerfri
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Vfend
- Voriconazole Accord
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir einhvern tíma átt við geðræn vandamál að stríða
- þú takir einhver önnur lyf
- þú hafir nýlega verið bólusettur
- þú sért með ómeðhöndlaða sýkingu
- þú sért með ómeðhöndlaðan sjúkdóm, t.d. magasár, háþrýsting, sykursýki eða beinþynningu
Meðganga:
Aðeins má nota lyfið á meðgöngu ef augljósa nauðsyn ber til.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Skammtar eru einstaklingsbundnir og háðir líkamsþyngd og sjúkdómi.
Eldra fólk:
Meiri líkur eru á aukaverkunum. Minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Getur aukið líkur á myndun magasárs. Haltu neyslu áfengis í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Bannað í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.