Deferasirox Accord
Önnur lyf, ýmis konar | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Deferasirox
Markaðsleyfishafi: Accord Healthcare | Skráð: 13. janúar, 2020
Deferasirox Accord inniheldur virka efnið deferasirox. Það klóbindur járn og er notað til að fjarlægja umframjárn úr líkamanum (einnig kallað járnofhleðsla). Það fangar og fjarlægir umframjárn, sem síðan skilst svo aðallega út úr líkamanum í hægðum. Endurteknar blóðgjafir geta verið nauðsynlegar sjúklingum með ýmsar tegundir blóðleysis (til dæmis dvergkornablóðleysi, sigðkornablóðleysi eða mergrangvaxtarheilkenni). Endurteknar blóðgjafir geta hins vegar valdið því að of mikið járn hleðst upp í líkamanum. Þetta gerist vegna þess að blóðið inniheldur járn og líkaminn getur ekki með náttúrulegum hætti losað sig við það umframjárn sem hann fær með blóðgjöfunum. Járn getur einnig hlaðist upp með tímanum hjá sjúklingum með dvergkornablóðleysi sem ekki er háð blóðgjöfum, einkum vegna aukins frásogs járns úr fæðunni sem er svörun líkamans við of fáum blóðfrumum. Með tímanum getur of mikið járn skaðað mikilvæg líffæri, t.d. lifrina og hjartað. Lyf sem klóbinda járn eru notuð til að fjarlægja umframjárnið og draga úr hættunni á því að það skaði líffærin. Deferasirox Accord er notað til meðferðar við langvarandi járnofhleðslu vegna tíðra blóðgjafa hjá sjúklingum, 6 ára og eldri, með beta-dvergkornablóðleysi. Lyfið er einnig notað til meðferðar við langvarandi járnofhleðslu þegar ekki má nota deferoxamin eða meðferð með því er ófullnægjandi hjá sjúklingum með alvarlegt beta-dvergkornablóðleysi ásamt járnofhleðslu vegna blóðgjafa sem ekki eru tíðar, hjá sjúklingum með aðrar tegundir blóðleysis og hjá börnum á aldrinum 2 til 5 ára. Deferasirox Accord er einnig notað, þegar ekki má nota deferoxamin eða meðferð með því er ófullnægjandi, til meðferðar hjá sjúklingum, 10 ára og eldri, sem eru með járnofhleðslu sem tengist dvergkornablóðleysi, en eru ekki háðir blóðgjöfum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku
Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundir. Taka á töflurnar annaðhvort á fastandi maga eða með léttri
máltíð sama tíma á hverjum degi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Getur verið breytilegt.
Verkunartími:
Um 2 sólarhringar.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ef gleymist að taka einn skammt skal taka hann eins fljótt og eftir því er munað. Takið næsta skammt samkvæmt áætlun. Ekki á að tvöfalda skammt daginn eftir til að bæta upp töflu(r) sem gleymst hefur að taka.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hættið ekki að nota lyfið nema læknirinn ráðleggi það. Sé hætt að nota lyfið fer umframjárnið ekki lengur úr líkamanum.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafir þú tekið of stóran skammt, eða ef einhver annar tekur töflurnar inn fyrir slysni, skal strax hafa samband við lækni eða sjúkrahús til að fá frekari upplýsingar. Hafðu meðferðis umbúðir lyfsins. Nauðsynlegt getur verið að veita læknismeðferð. Sími eitrunarmiðstöðvar Landspítala er 543 2222.
Langtímanotkun:
Lyfið er ætlað tll langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Blóðug uppköst eða blóð í hægðum | |||||||
Brjóstsviði | |||||||
Heyrnaskerðing | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Kláði | |||||||
Meltingaróþægindi, hægðatregða | |||||||
Minnkuð sjón | |||||||
Minnkuð þvaglát | |||||||
Ofnæmi, roði, útbrot og kláði í húð | |||||||
Ógleði, uppþemba, uppköst | |||||||
Sundl, þreyta | |||||||
Syfja, kviðverkur, gulnun húðar eða augna og dökkt þvag |
Milliverkanir
Ekki má nota lyfið með öðrum lyfjum sem klóbinda járn. Lyfið getur dregið úr verkun getnaðarvarna sem innihalda hormóna. Mælt er með notkun viðbótargetnaðarvarnar eða nota smokka.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Alendronat Bluefish
- Alendronat Teva
- Alvofen Express
- Arcoxia
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Bonviva
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Cloxabix
- Clozapin Medical
- Clozapine Actavis
- Coxerit
- Coxient
- Dabigatran Etexilate Accord
- Dabigatran etexilate Krka
- Decortin H
- Dexametason Abcur
- Dexamethasone hameln
- Dexamethasone Krka
- Dexavit
- Diclomex
- Dimax Rapid
- Dynastat
- Etoricoxib Krka
- Ezetimib/Simvastatin Krka
- Gaviscon
- Gaviscon (Heilsa)
- Iasibon
- Ibandronic acid Alvogen
- Ibandronic acid WH
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Ikervis
- Inegy
- Lixiana
- Magical Mouthwash
- Modifenac
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- NovoNorm
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Ostacid
- Parapró
- Paxlovid
- Pradaxa
- Prednisolon - forskriftarlyf
- Prednisolon EQL Pharma
- Prednisolone Actavis
- Repaglinid Krka
- Rimactan
- Rivaroxaban WH
- Sandimmun Neoral
- Simvastatin Actavis
- Simvastatín Alvogen
- Simvastatin Bluefish
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Warfarin Teva
- Xarelto
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með krabbamein
- þú sért með niðurgang eða uppköst
Meðganga:
Ekki er mælt með notkun á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til.
Brjóstagjöf:
Ekki er mælt með að barn sé haft á brjósti meðan á meðferð með Deferasirox Accord stendur.
Börn:
Ekki er mælt með notkun lyfsins fyrir börn yngri en tveggja ára.
Eldra fólk:
Sömu skammtar en geta fengið meiri aukaverkanir.
Akstur:
Lyfið hefur lítil áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. Sjúklingar sem finna fyrir sundli, sem er sjaldgæf aukaverkun, eiga að gæta varúðar við akstur og notkun véla.
Annað:
Með reglulegu millibili meðan á meðferðinni stendur verða tekin blóð- og þvagsýni. Með þeim er haft eftirlit með járnmagni í líkamanum (magni ferritins í blóði) til að fylgjast með því hve vel meðferðin verkar. Með sýnunum er einnig fylgst með nýrnastarfseminni (magni kreatíníns í blóði, hvort til staðar sé prótein í þvaginu) og lifrarstarfseminni (magni transamínasa í blóði). Læknirinn getur þurft að láta taka vefjasýni úr nýrum ef grunur er um verulegar nýrnaskemmdir. Einnig getur verið að framkvæmdar verði segulómun eða MRI (magnetic resonance imaging) rannsóknir til að ákvarða járnmagnið í lifrinni. Læknirinn hefur þessar rannsóknir til hliðsjónar þegar hann ákveður hvaða skammtur henti best og hann mun einnig nota þessar rannsóknir til að ákveða hvenær þú átt að hætta meðferð.
Í öryggisskyni verða sjón og heyrn mæld árlega meðan á meðferð stendur.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.