Furosemide Kalceks

Þvagræsilyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Fúrósemíð

Markaðsleyfishafi: Kalceks AS | Skráð: 5. september, 2023

Furosemide Kalceks er hraðvirkt og kröftugt þvagræsilyf. Það er notað við bjúg (vökvasöfnun) vegna hjartabilunar, nýrnabilunar eða lifrarbilunar. Lyfið er einnig notað sem þáttur í lyfjameðferð við mjög háum blóðþrýstingi. Furosemide Kalcekser gefið ef nægileg þvagframleiðsla næst ekki með gjöf fúrósemíðs til inntöku eða ef ekki er hægt að gefa það með inntöku. Virka efnið fúrósemíð veldur kalíumtapi sem getur leitt til kalíumskorts. Kalíumskortur eykur líkur á óreglulegum hjartslætti, sérstaklega hjá sjúklingum sem eru veilir fyrir hjarta. Til þess að fyrirbyggja kalíumskort er kalíum oft gefið með fúrósemíði.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf/innrennslislyf.

Venjulegar skammtastærðir:
Læknir eða hjúkrunarfræðingur gefur Furosemide Kalceks sem hæga inndælingu eða innrennsli (dreypi) í æð eða vöðva.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-15 mín. eftir gjöf í bláæð.

Verkunartími:
Einstaklingsbundið.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Þar sem lyfið veldur kalíumtapi er ráðlegt að neyta grænmetis og ávaxta sem innihalda mikið af kalíumi. Lakkrís í miklu magni ásamt fúrósemíði getur valdið auknu tapi á kalíum. Töflur skal taka á fastandi maga, að minnsta kosti ½ klst fyrir máltíð eða 2 klst eftir máltið.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ef þú heldur að skammtur sé að gleymast skaltu láta lækni eða hjúkrunarfræðing vita.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef þú heldur að þú hafir fengið of mikið af lyfinu skaltu tafarlaust láta lækninn vita. Einkenni ofskömmtunar eru munnþurrkur, aukinn þorsti, óreglulegur hjartsláttur, skapbreytingar, vöðvakrampar eða verkir, ógleði eða uppköst, óvenjuleg þreyta eða máttleysi, veikur púls eða lystarleysi. Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Yfirleitt án vandkvæða. Skipt verður yfir í gjöf með inntöku um leið og meðferðin leyfir.


Aukaverkanir

Langflestar aukaverkanir lyfsins eru skammtaháðar, þ.e. koma frekar fram og eru meiri eftir því sem skammtar eru stærri.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hækkað kólesteról, hækkuð blóðfita          
Höfuðverkur, svimi          
Lágur blóðþrýstingur          
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar      
Suð fyrir eyrum, skert heyrn          
Þvagsýrugigt versnar          
Blóðkalíumlækkun          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með blöðruhálskirtilsvandamál
  • þú sért með lágan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið þvagsýrugigt
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért blóðlítill
  • þú sért með lág kalíumgildi í blóði

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Lyfið á því ekki að nota með barn á brjósti.

Börn:
Eingöngu má gefa ungbörnum og börnum yngri en 15 ára fúrósemíð til inndælingar í undantekningartilvikum við lífshættulegt ástand. Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Veldur líka auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.

Annað:
Fúrósemíð getur aukið blóðsykur og því verið varasamt fyrir sykursýkisjúklinga.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.