Asacol
Lyf gegn þarmabólgum | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Mesalazín
Markaðsleyfishafi: Tillotts Pharma | Skráð: 1. janúar, 2000
Asacol, sem inniheldur virka efnið mesalazín, er notað við sárum og bólgusjúkdómum í þörmum og endaþarmi. Einkenni bólgusjúkdóma í þörmum stafa af of mikilli virkni ónæmiskerfisins og langvarandi bólgum sem valda vefjaskemmdum með tímanum. Verkunarmáti mesalazíns er ekki að fullu þekktur en það dregur úr myndun efna sem framkalla bólgur og virkja vissa hluta ónæmiskerfisins. Verkun mesalazíns er að mestu bundin við meltingarveginn. Mesalazín veldur færri aukaverkunum en önnur lyf sem eru notuð við sömu einkennum og þolist yfirleitt betur. Ofnæmisviðbrögð við því eru sjaldgæf. Asacol er til í þremur lyfjaformum. Sýruhjúptöflurnar eru aðallega notaðar gegn bólgum í smáþörmum eða ristli, sem lýsa sér í miklum og jafnvel blóðugum niðurgangi. Innhellislyfið er notað við bólgusjúkdómum í neðri hluta ristils. Endaþarmsstílarnir eru notaðir við bólgusjúkdómi í endaþarmi.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Sýruhjúptöflur til inntöku, endaþarmsstílar og innhellislyf í endaþarm.
Venjulegar skammtastærðir:
Töflur: 400-800 mg í senn 2-3svar á dag. Stílar: 1 stíll (500 mg) 2-3svar á dag. Innhellislyf: 1 skammtur fyrir svefn. Töflurnar gleypist heilar.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Bólgur í þörmum: 3 dagar-3 vikur.
Verkunartími:
Allt að 12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru niðurgangur, ógleði, magaverkir og höfuðverkur. Einnig eru uppköst og húðútbrot nokkuð algeng.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Magaverkir, vindgangur, niðurgangur | |||||||
Mæði | |||||||
Ógleði, uppköst | |||||||
Útbrot, kláði |
Milliverkanir
Ekki er mælt með samtímis notkun laktúlósa.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með astma
- þú sért með blóðsjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir fengið magasár
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Minni skammtar eru notaðir. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.