Metadon Abcur
Lyf gegn fíkn | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Metadón
Markaðsleyfishafi: Abcur | Skráð: 1. október, 2013
Metadon Abcur er morfínlíkt lyf sem er notað til meðferðar á langvinnum verkjum sem aðeins er hægt að hafa viðunandi stjórn á með ópíóíðverkjalyfjum. Lyfið er líka notað í meðferð við vímuefnafíkn.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Einstaklingsbundir. Töflum má skipta í jafna skammta.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1-2 klst.
Verkunartími:
2-3 dagar
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Ekki drekka áfengi né greipaldinsafa meðan á meðferð stendur.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Þú skalt aðeins gera hlé á eða hætta meðferðinni eftir að hafa talað við lækninn. Ekki skal hætta skyndilega að taka Metadon Abcur því það getur leitt til fráhvarfseinkenna svo sem svefnleysis, nefrennslis, táramyndunar, lystarleysis, niðurgangs og verkja.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Merki um ofskömmtun Metadon Abcur geta verið lítil sjáöldur, syfja, fölleiki, rök húð, lágur líkamshiti, öndunarerfiðleikar og dá. Í alvarlegum tilvikum ofskömmtunar geta eftirfarandi einkenni komið fram: stutt öndunarstopp, lágur blóðþrýstingur, hægur púls, lost, áhrif á hjarta, vökvi í lungum, flog, vöðvamáttleysi, nýrnabilun, óreglulegur hjartsláttur og dauði. Börn og aldraðir eru viðkvæmari fyrir lyfinu. Hafðu samband við lækninn ef eitthvert af ofangreindum einkennum kemur fram.
Langtímanotkun:
Lyfið er ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanirnar eru ógleði, uppköst.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Andnauð, bólga í munni og koki | |||||||
Aukin svitamyndun | |||||||
Bjúgur, þyngdaraukning | |||||||
Hægðatregða, ógleði og uppköst | |||||||
Höfuðverkur, lystarleysi | |||||||
Syfja, sæluvíma | |||||||
Þokusýn og lítil sjáöldur. |
Milliverkanir
Ekki má nota Metadon Abcur ef þú ert með ofnæmi fyrir metadóni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins, ef þú notar eða hefur notað MAO-hemil (mónóamín-oxíðasahemil) innan síðustu tveggja vikna (lyf sem er notað við þunglyndi og Parkinsons-sjúkdómi),- ef þú átt við öndunarerfiðleika að stríða. Ekki drekka greipaldinsafa á meðan þú ert í meðferð með Metadon Abcur, því það kann að breyta áhrifum lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Azilect
- Cordarone
- Haldol
- Haldol Depot
- Rasagilin Krka
- Serdolect
- Sotalol Mylan
- Tambocor
- Tambocor (Heilsa)
- Xyrem
Getur haft áhrif á
- Abiraterone STADA
- Akeega
- Alimemazin Evolan
- Anafranil
- Atomoxetin Actavis
- Atomoxetin Medical Valley
- Atomoxetine STADA
- Bloxazoc
- Bosulif
- Candizol
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Dexametason Abcur
- Dexamethasone hameln
- Dexamethasone Krka
- Dexavit
- Diflucan
- Dropizol
- Firmagon
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Ikervis
- Immex
- Imodium
- Imodium (Heilsa)
- Isoptin Retard
- Klacid
- Klomipramin Viatris
- Logimax
- Logimax forte
- Loperamide Medical Valley
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Moventig
- Naloxon B. Braun
- Naloxonhydrochlorid - forskriftarlyf
- Noritren
- Nyxoid
- Oxycodone/Naloxone Alvogen
- Paxlovid
- Pegasys
- Peratsin
- Rimactan
- Ríson
- Risperdal
- Risperdal Consta
- Risperidon Krka
- Risperidone Teva GmbH
- Sandimmun Neoral
- Sativex
- Scemblix
- Seloken
- Seloken ZOC
- SEM mixtúra
- Signifor
- Spirix
- Spiron
- Sporanox
- Strattera (Lyfjaver)
- Suboxone
- Tamoxifen Mylan
- Targin
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Trilafon dekanoat
- Túfen
- Veraloc Retard
Varúð
Meðganga:
Ekki er ráðlagt að nota lyfið meðan á fæðingarhríðum stendur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Nauðsynlegt er að minnka skammtinn. Fylgið ráðleggingum læknisins.
Akstur:
Metadón hefur áhrif á samhæfingu líkamshreyfinga í heila og því verður getan til aksturs og notkunar véla fyrir miklum áhrifum þar til jafnvægisskammtur lyfsins hefur verið fundinn. Því skaltu hvorki aka né nota vélar í upphafi meðferðar. Tíminn sem líður þar til viðkomandi getur ekið eða notað vélar er að miklu leyti einstaklingsbundinn, svo þetta skal ákveða í samráði við lækninn.
Áfengi:
Þú mátt ekki drekka áfengi á meðan þú tekur Metadon Abcur, því það getur leitt til alvarlegra aukaverkana.
Íþróttir:
Bannað í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.