Metoprololsuccinat Hexal
Beta-blokkar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Metóprólól
Markaðsleyfishafi: Hexal | Skráð: 1. apríl, 2015
Metoprololsuccinat Hexal tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, t.d. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða komist í miðtaugakerfið eða ekki. Virka efnið metóprólól hefur tiltölulega sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur það færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, það hefur t.d. lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það betur. Lyfið er notað við háþrýstingi, hjartaöng, hjartsláttartruflunum, hjartsláttarónotum, stöðugri hjartabilun og til að fyrirbyggja hjartadrep vegna kransæðastíflu. Metóprólól berst til miðtaugakerfisins og getur komið að gagni sem fyrirbyggjandi lyf við mígreni.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Forðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
12,5-200 mg einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi. Má skipta þeim í tvennt en hvorki tyggja þær né mylja.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst.
Verkunartími:
24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómur getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Ekki má hætta skyndilega.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við öndunarerfiðleika eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru tíðari eftir því sem skammtar eru stærri. Almennt finna um 10% þeirra sem taka lyfið fyrir einhverjum aukaverkunum.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Bjúgur | |||||||
Gula | |||||||
Hand- eða fótkuldi | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur | |||||||
Höfuðverkur, svimi, þreyta | |||||||
Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða | |||||||
Mæði við áreynslu | |||||||
Ógleði | |||||||
Skapgerðarbreytingar | |||||||
Svimi þegar staðið er upp | |||||||
Útbrot, kláði | |||||||
Verkur fyrir brjósti, mæði |
Milliverkanir
Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Alutard SQ, birkifrjo
- Alutard SQ, derm. pter.
- Alutard SQ, hundahar
- Alutard SQ, kattahar
- Alutard SQ, vallarfoxgras
- Cordarone
- Grazax
- Isoptin Retard
- Soluprick Negativ kontrol
- Soluprick Positiv kontrol
- Soluprick SQ ALK108 - Birkifrjó
- Soluprick SQ ALK225 - Vallarfoxgras
- Soluprick SQ ALK504 - Rykmaur
- Soluprick SQ ALK552 - Hrossaværur
- Soluprick SQ ALK553 - Hundahár
- Soluprick SQ ALK555 - Kattahár
- Veraloc Retard
Getur haft áhrif á
- Abiraterone STADA
- Actrapid
- Adalat Oros
- Adrenalin Mylan
- Akeega
- Alfuzosin hydrochlorid ratiopharm
- Alvofen Express
- Amiloride / HCT Alvogen
- Apidra
- Arcoxia
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Arzotilol
- Atenolol Viatris
- Azarga
- Benylan
- Betmiga
- Betmiga (Heilsa)
- Betmiga (Lyfjaver)
- Bisbetol
- Bisoprolol Medical Valley
- Bricanyl Turbuhaler
- Bufomix Easyhaler
- Bupropion Teva
- Candpress Comp
- Carbocain adrenalin
- Cardil
- Carvedilol Alvogen (áður Carveratio)
- Carvedilol STADA
- Catapresan (Undanþágulyf)
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Cinacalcet STADA
- Cinacalcet WH
- Cipralex
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Cloxabix
- Cosopt sine
- Coxerit
- Coxient
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Darazíð
- Diamicron Uno
- Diclomex
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Diltiazem HCl Alvogen (áður Dilmin)
- Dimax Rapid
- Dorzolamide/Timolol Alvogen
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- Duodart
- Duokopt
- DuoResp Spiromax
- DuoTrav
- Duta Tamsaxiro
- Dutaprostam
- Dutasteride/Tamsulosin Teva
- Dynastat
- Efexor Depot
- Emla
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- EpiPen
- EpiPen Junior
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Etoricoxib Krka
- Eucreas
- Euthyrox
- Fiasp
- Fixopost
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Mylan
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Flutiform
- Fontex
- Fotil forte
- Galantamin STADA
- Galvus
- Ganfort
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Glucophage
- Humalog
- Humalog KwikPen
- Humalog Mix25 KwikPen
- Humulin NPH KwikPen
- Hydromed
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Imatinib Accord
- Imatinib Krka d.d.
- Insulatard
- Insulatard FlexPen
- Insulatard InnoLet
- Janumet
- Januvia
- Januvia (Lyfjaver)
- Jentadueto
- Jext
- Kerendia
- Lantus [Clikstar]
- Lantus [Solostar]
- Levaxin
- Levemir FlexPen
- Levemir Penfill
- Lidbree
- Lidokain Viatris
- Lidokain-tetrakain - forskriftarlyf
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Magical Mouthwash
- Marcain adrenalin
- Metadon 2care4
- Metadon Abcur
- Metformin Bluefish
- Metformin EQL
- Metformin Sandoz
- Metformin Teva B.V.
- Modifenac
- Multaq
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Novo Mix 30 Penfill
- NovoMix 30 FlexPen
- NovoNorm
- NovoRapid
- NovoRapid FlexPen
- NovoRapid Penfill
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Omnic
- Oropram
- Oxis Turbuhaler
- Paradorm
- Parapró
- Paxetin
- Pioglitazone Actavis
- Presmin Combo
- Propranolol hydrochloride
- Relifex
- Relvar Ellipta
- Repaglinid Krka
- Rimactan
- Rinexin
- Salmeterol/Fluticasone Neutec
- Salmex
- SEM mixtúra
- Seretide
- Serevent
- Seroxat
- Sertral
- Sertralin Bluefish
- Sertralin Krka
- Sertralin WH
- Signifor
- Sitagliptin Krka
- Sitagliptin Sandoz
- Sitagliptin STADA
- Sitagliptin Teva
- Sitagliptin Zentiva
- Sitagliptin/Metformin Krka
- Sitagliptin/Metformin Medical Valley
- Sitagliptin/Metformin Sandoz
- Sitagliptin/Metformin Zentiva
- Solian
- Soltamcin
- Sotalol Mylan
- Spiolto Respimat
- Striverdi Respimat
- Symbicort (Lyfjaver)
- Symbicort forte Turbuhaler
- Symbicort mite Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler (Heilsa)
- Symbicort Turbuhaler (Lyfjaver) Noregur
- Synjardy
- Tambocor
- Tambocor (Heilsa)
- Tamsulosin Medical
- Tamsulosin Viatris
- Taptiqom
- Taptiqom Sine
- Terbinafin Actavis
- Terbinafin Medical Valley
- Timosan Depot
- Toradol
- Toujeo [DoubleStar]
- Toujeo [Solostar]
- Trandate
- Travoprost/Timolol Medical Valley
- Travoprost/Timolol STADA
- Trelegy Ellipta
- Tresiba
- Trimbow
- Trixeo Aerosphere
- Truxal
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka (Heilsa)
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Venlafaxin Actavis
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
- Ventoline
- Vildagliptin/Metformin Krka
- Wellbutrin Retard
- Wellbutrin Retard (Lyfjaver)
- Xalcom
- Xylocain
- Xylocain adrenalin
- Xylocain án rotvarnarefna
- Xylocain Dental Adrenalin
- Zoloft
- Zyban
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
- þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Getur aukið áhrif metóprólóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.