Sitagliptin/Metformin Sandoz
Sykursýkilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Metformín Sitagliptín
Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 26. febrúar, 2021
Sitagliptin/Metformin Sandoz inniheldur virku efnin metformín og sitagliptín og er við sykursýki. Sitagliptín tilheyrir flokki sykursýkilyfja sem nefnist thíazólidíndíónlyf. Verkunarmáti metformíns er ekki að fullu þekktur en það eykur áhrif insúlíns á vefi líkamans, minnkar sykurnýmyndun í lifur og upptöku sykurs úr þörmum. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, eða insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, eða insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og þarf að vera til staðar í líkamanum til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Lyfið er ýmist notað eitt eða með, súlfónýlúrelyfjum (sem innihalda virku efnin glíbenklamíð, glípízíð, glíklazíð og glímepíríð), eða thíazólidíndíónlyfjum (sem innihalda virku efnin rósíglítazón, píóglítazón og vildagliptín) þegar notkun þessara lyfja, ásamt breyttu mataræði og líkamsþjálfun, hefur ekki borið viðunandi árangur. Í meltingarvegi líkamans eru ákveðin hormón (m.a. GLP-1 og GIP) sem taka þátt í stjórnun á jafnvægi blóðsykurs í líkamanum. Þau stuðla að aukinni insúlínframleiðslu og losun insúlíns úr briskirtli og minni framleiðslu á glúkósa í lifrinni. Heildaráhrifin eru aukin upptaka á sykri úr blóði inn í frumur líkamans. Í líkamanum er efni sem heitir dipeptíl peptíðasi-4 (DPP-4) en þetta efni brýtur þessi hormón niður og dregur þannig úr áhrifum þeirra og hækkar blóðsykur. Blóðsykurslækkandi verkun sitagliptíns felst í því að hindra DPP-4.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
1 tafla 2svar á dag með mat.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Ekki að fullu þekkt.
Verkunartími:
A.m.k. 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er hluti af meðferð.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Farðu á sjúkrahús ef þú finnur fyrir einkennum mjólkursýrublóðsýringar, svo sem kuldatilfinningu eða vanlíðan, alvarlegri ógleði eða uppköstum, magaverk, þyngdartapi af óþekktum orsökum, krampa í vöðvum eða hröðum andardrætti
Langtímanotkun:
Takmörkuð reynsla er af langtímanotkun lyfsins. Vegna sykursýkinnar er æskilegt að fylgjast reglulega með sykri í blóði eða þvagi. Einnig getur þurft að fylgjast með sjón og lifrar-, nýrna- og hjartastarfsemi.
Aukaverkanir
Lyfið getur valdið of mikilli lækkun á blóðsykri. Einkenni um lágan blóðsykur eru aukin svitamyndun, hungurtilfinning, hraður hjartsláttur, sjóntruflanir, sljóleiki, rugl, höfuðverkur, kuldatilfinning eða uppköst.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Brisbólga: Hiti og kviðverkir | |||||||
Hægðatregða | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Nefstífla eða nefrennsli | |||||||
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar | |||||||
Ógleði, vindgangur | |||||||
Sýking í efri öndunarvegi | |||||||
Lágur blóðsykur |
Milliverkanir
Þegar lyfið er tekið samtímis sykursýkilyfjum af flokki súlfónýlúrealyfja þá getur það valdið of mikilli blóðsykurslækkun.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Alvofen Express
- Amiloride / HCT Alvogen
- Apidra
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Atenolol Viatris
- Betolvex
- Bloxazoc
- Candpress Comp
- Captopril mixtúra - forskriftarlyf
- Cinveron
- Cotrim
- Coversyl Novum
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Dailiport
- Darazíð
- Daren
- Diamicron Uno
- Diclomex
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Dimax Rapid
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril Krka
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Eusaprim
- Euthyrox
- Fampyra
- Fampyra (Heilsa)
- Fampyra (Lyfjaver)
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Hydromed
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Idotrim
- Isoptin Retard
- Jardiance
- Keflex
- Levaxin
- Logimax
- Logimax forte
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Lynparza
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Modifenac
- Modigraf
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Ondansetron Bluefish
- Ondansetron Fresenius Kabi
- Ondansetron STADA
- Parapró
- Presmin Combo
- Prograf
- Qsiva
- Ramíl
- Rimactan
- Seloken
- Seloken ZOC
- Strefen
- Strefen (Heilsa)
- Strefen Apelsin (Heilsa)
- Strefen Honung & Citron
- Strefen Orange Sukkerfri
- Synjardy
- Topimax
- Topiramat Actavis
- Topiramate Alvogen
- Tresiba
- Trimetoprim Meda
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka (Heilsa)
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Veraloc Retard
- Zofran
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm eða hafir fengið hjartaáfall
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú neytir áfengis í miklum mæli
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
- þú sért með alvarlega sýkingu
- þú sért með barn á brjósti
Meðganga:
Lyfið má ekki nota á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Ekki taka lyfið ef þú ert með barn á brjósti.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir. En gæta skal varúðar með hækkandi aldri og fylgjast þarf sérstaklega með nýrnastarfsemi þar sem lyfið er skilið út um nýru.
Akstur:
Lyfið getur valdið sljóleika og svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis en það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því ekki að neyta áfengis.
Íþróttir:
Leyfti við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.