Ondansetron STADA
Lyf við uppköstum og ógleði | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Ondansetrón
Markaðsleyfishafi: STADA Arzneimittel | Skráð: 1. júní, 2021
Ondansetron STADA inniheldur virka efnið ondansetrón. Lyfið er ætlað til meðferðar gegn ógleði og uppköstum af völdum frumudrepandi krabbameinsmeðferðar eða geislameðferðar. Lyfið er einnig notað til varnar ógleði og uppköstum eftir skurðaðgerðir. Krabbameinslyfjameðferðir og geislameðferðir geta valdið því að 5HT (serótónín) losast í smágirni en það örvar viðbragð sem veldur uppköstum. Verkunarháttur ondandasetróns gegn ógleði og uppköstum er ekki fullþekktur en lyfið er sértækur 5HT3-viðtaka blokkari og hindrar þetta viðbragð. Verkunarháttur gegn ógleði og uppköstum eftir skurðaðgerðir er heldur ekki þekktur en getur verið sá sami og gegn ógleði og uppköstum sem krabbameinslyfjameðferð veldur.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töfur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru mismunandi eftir samsetningu krabbameinslyfjameðferðar og geislameðferðar eða 8 mg 2svar á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif lyfsins koma fljótlega fram.
Verkunartími:
U.þ.b. 12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Hitatilfinning eða andlitsroði | |||||||
Hjartsláttartruflanir | |||||||
Hægðatregða | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Krampar eða flog | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Eucreas
- Glucophage
- Janumet
- Jentadueto
- Metformin Bluefish
- Metformin EQL
- Metformin Sandoz
- Metformin Teva B.V.
- Rimactan
- Sitagliptin/Metformin Krka
- Sitagliptin/Metformin Medical Valley
- Sitagliptin/Metformin Sandoz
- Sitagliptin/Metformin Zentiva
- Sufenta
- Synjardy
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Tradolan
- Tramadol Actavis
- Tramadol Krka
- Tramól-L
- Vildagliptin/Metformin Krka
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með skerta lifrarstarfsemi
- þú sért með þarmateppu
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Ekki skal nota lyfið meðan á brjóstagjöf stendur.
Börn:
Skammtar eru háðir aldri og líkamsstærð.
Eldra fólk:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins í öldruðum eftir skurðaðgerðir. Í meðferð gegn ógleði og uppköstum sökum krabbameinslyfjameðferðar og geislameðferðar skal notast við venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.