Tradolan

Verkjalyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Tramadól

Markaðsleyfishafi: G. L. Pharma | Skráð: 1. ágúst, 1998

Tramadól, virka efnið í Tradolan, er sterkt verkjalyf og tilheyrir flokki ópíóíða sem verkar á miðtaugakerfið. Verkjastillandi áhrif þess er aðeins minni en áhrif morfíns en ávanahætta er mun minni af tramadóli. Auk verkjastillandi áhrifa þá slær tramadól einnig á hósta en svo hefur lyfið minni áhrif á þarmahreyfingar, borið saman við morfín, og veldur því síður hægðatregðu. Tramadól er notað við miðlungsmiklum til miklum verkjum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru misjafnir eftir eðli verkja og næmi sjúklings. Fullorðnir og börn eldri en 14 ára: 50-100 mg í senn 1-4 sinnum á dag. Börn eldri en 1 árs: 1-2 mg á hvert kg líkamsþyngdar í senn 1-4 sinnum á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst. eftir inntöku.

Verkunartími:
4-6 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin. Þó er mögulegt að greipaldinsafi geti haft áhrif á niðurbrot tramadóls í líkamanum og því ber að forðast að neyta hans á meðan lyfið er tekið.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ef lyfið er tekið að staðaldri skaltu taka skammtinn sem fyrst og halda áfram að taka lyfið með sama millibili og áður. Ef lyfið er tekið við tilfallandi verkjum má sleppa skammtinum og taka lyfið þegar þörf krefur. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Séu forsendur fyrir lyfjatöku ekki lengur fyrir hendi má hætta töku þess. Hafðu samband við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni sem fyrst ef mjög stór skammtur er tekinn. Ef öndun er hæg eða óregluleg, sjúklingur kastar upp, fær krampa eða meðvitund skerðist þarf að koma sjúklingi strax til læknis.

Langtímanotkun:
Þol gegn lyfinu getur myndast við langtímanotkun.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru ógleði og svimi.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Höfuðverkur, sundl, svefndrungi          
Krampar        
Munnþurrkur, aukin svitamyndun          
Ógleði, uppköst, hægðatregða          
Skapgerðarbreytingar          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þreyta          
Þvagtregða        

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með lungnasjúkdóm, svo sem astma eða berkjubólgu
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Lyfið getur haft áhrif á fóstur og/eða nýbura.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd. 14 ára og eldri nota sömu skammta og fullorðnir.

Eldra fólk:
Getur þurft minni skammta.

Akstur:
Lyfið getur skert athygli og dregið úr aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Eykur sljóvgandi áhrif tramadóls. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Fíknarvandamál:
Tradolan hefur væg ávanabindandi áhrif.

Annað:
 


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.