Sildenafil Actavis (Heilsa)
Þvagfæralyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Síldenafíl
Markaðsleyfishafi: Actavis | Skráð: 1. ágúst, 2010
Sildenafil Actavis er notað við stinningarvanda karla. Virka efnið síldenafíl minnkar niðurbrot á æðavíkkandi efni í getnaðarlim. Þetta æðavíkkandi efni myndast í limnum við kynferðislega örvun og því veldur lyfið ekki stinningu eitt sér heldur þarf örvun til þess að lyfið virki. Áhrif síldenafíls eru að mestu leyti bundin við æðar í getnaðarlimnum. Það getur haft einhver æðavíkkandi áhrif á öðrum stöðum í líkamanum, en í venjulegum skömmtum eru þau óveruleg. Síldenafíl er ekki ætlað öðrum karlmönnum en þeim sem eiga í vandræðum með stinningu. Lyfið er alls ekki ætlað konum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
25-100 mg í senn einu sinni á dag. Lyfið er tekið 60 mín. fyrir samfarir. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
10-40 mín.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Áhrif lyfsins eru lengur að koma fram ef þú neytir fituríkrar fæðu áður en þú tekur lyfið.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
ið er ekki tekið að staðaldri.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er ekki tekið að staðaldri. Hætta má töku þess hvenær sem henta þykir.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Þó eru meiri líkur á að aukaverkanir lyfsins komi fram eftir því sem stærri skammtar eru teknir. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Engin þekkt vandamál.
Aukaverkanir
Þær aukaverkanir sem hafa komið fram eru vægar og háðar skammtastærð lyfsins.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur | |||||||
Höfuðverkur, sundl | |||||||
Langvarandi stinning | |||||||
Meltingartruflanir | |||||||
Nefstífla | |||||||
Roði eða hitatilfinning í andliti | |||||||
Sjóntruflanir | |||||||
Útbrot, kláði | |||||||
Yfirlið |
Milliverkanir
Greipaldinsafi getur haft áhrif á virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Adempas
- Adempas (Abacus Medicine)
- Fem-Mono Retard
- Imdur
- Ismo
- Nitroglycerin DAK
- Paxlovid
- Rimactan
- Sporanox
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Vfend
- Voriconazole Accord
Getur haft áhrif á
- Candizol
- Cardil
- Cardosin Retard
- Carduran Retard
- Caverject Dual
- Cialis
- Ciprofloxacin Alvogen
- Ciprofloxacin Navamedic
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Cordarone
- Diflucan
- Diltiazem HCl Alvogen (áður Dilmin)
- Doxazosin Krka
- Duodart
- Duta Tamsaxiro
- Dutaprostam
- Dutasteride/Tamsulosin Teva
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Isoptin Retard
- Klacid
- Omnic
- Síprox
- Soltamcin
- Tadalafil Krka
- Tadalafil Mylan
- Tamsulosin Medical
- Tamsulosin Viatris
- Veraloc Retard
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með blóðsjúkdóm
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með óeðlilegan getnaðarlim
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið er ekki ætlað konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið er ekki ætlað konum.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og sjóntruflunum. Óráðlegt er að aka bíl fyrr en áhrif lyfsins eru liðin hjá.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Áfengi getur þó dregið úr kyngetu.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.