OxyNorm
Verkjalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Oxýkódon
Markaðsleyfishafi: Norpharma | Skráð: 1. ágúst, 2009
OxyNorm er notað við miklum eða mjög miklum verkjum en er ekki ætlað til að meðhöndla bráðaverki. OxyNorm er flokkað sem náttúrulegur ópíumalkalóíði. Lyfið hefur áhrif á miðtaugakerfið og hindrar að sársaukaboð berist þangað. Það hefur aðallega verkjastillandi og róandi áhrif. Auk þessara áhrifa getur lyfið dregið úr hósta og minnkað þarmahreyfingar. Ávanahætta er nokkur og sé lyfið notað til langs tíma getur myndast þol við áhrifum þess.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Stungulyf í æð eða undir húð.
Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundnir og háðir aldri, því hversu miklir verkirnir eru og fyrri notkun verkjalyfja.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Nokkrar mínútur.
Verkunartími:
Um 4 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu skammtinn sem fyrst og haltu síðan áfram að taka lyfið með sama millibili og áður frá þessum skammti. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef ástæður eru ekki lengur fyrir hendi fyrir því að lyfið var upphaflega gefið má hætta notkun þess. Hafi lyfið verið notað í langan tíma eða í stórum skömmtum gætu komið fram fráhvarfseinkenni þegar notkun þess er hætt. Hafðu samband við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni sem fyrst. Ef öndun er hæg eða óregluleg eða ef meðvitund skerðist þarf að koma sjúklingi strax til læknis. Við ofskömmtun geta komið fram agnarsmá sjáöldur, öndunarbæling og lágur blóðþrýstingur. Í alvarlegri tilfellum geta komið fram truflanir í æðakerfi og djúpt dá. Meðferð byggist á því að opna öndunarveg og veita öndunaraðstoð. Við mikla ofskömmtun er mótefnið naloxón gefið í æð.
Langtímanotkun:
OxyNorm skal ekki gefa lengur en bráða nauðsyn ber til. Ef þörf er á langtímameðferð skal fylgjast vel og reglulega með sjúklingnum til að ákvarða frekari meðferð.
Aukaverkanir
Öndunarbæling er ein alvarlegasta aukaverkun lyfsins og er líklegri hjá öldruðum og mikið veikum sjúklingum.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Breytingar í skapi, virkni og vitsmunum | |||||||
Krampar | |||||||
Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða | |||||||
Munnþurrkur | |||||||
Náladofi | |||||||
Ógleði, uppköst, meltingartruflanir | |||||||
Ropi, hiksti, lystarleysi | |||||||
Slævandi verkun | |||||||
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi | |||||||
Svefndrungi, sundl eða höfuðverkur | |||||||
Svimi þegar staðið er upp | |||||||
Sviti og hrollur | |||||||
Útbrot og mikill kláði | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | |||||||
Öndunarerfiðleikar | |||||||
Þróttleysi, svefnleysi | |||||||
Þvagtregða, aukin tíðni þvagláta |
Milliverkanir
Róandi lyf, svefnlyf, þunglyndislyf, sefandi lyf, sum ofnæmislyf, uppsölulyf og aðrir ópíóíðar eða áfengi, geta eflt aukaverkanir, einkum öndunarbælingu. Sefandi lyf og sum ofnæmislyf, uppsölulyf og parkinsonslyf geta aukið á andkólínvirkar aukaverkanir, svo sem hægðatregðu, munnþurrk eða truflanir á þvaglátum. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta aukið sefandi áhrif lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Abiraterone STADA
- Akeega
- Alphagan
- Amitriptylin Abcur
- Brieka
- Brimonidin Bluefish
- Diacomit Lyfjaver
- Dropizol
- Elvanse Adult
- Lyrica
- Lyrica (Lyfjaver)
- Mirvaso
- Naltrexone Hydrochloride
- Paxlovid
- Pregabalin Krka
- Pregabalin Medical Valley
- Simbrinza
- Vfend
- Volidax
- Voriconazole Accord
- Xonvea
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með Addisonssjúkdóm
- þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með lungnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú sért með stækkun í blöðruhálskirtli
- þú sért með vanvirkan skjaldkirtil
- þú hafir einhvern tíma misnotað áfengi eða lyf
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
- þú eigir vanda til þess að fá blóðþrýstingsfall
- þú sért með aukinn heilaþrýsting
- þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
- þú sért með þarmalömun
Meðganga:
Lyfið getur haft áhrif á fóstur og/eða nýbura.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólk:
Skammtar eru einstaklingsbundnir.
Akstur:
Hafa skal samráð við lækni um það hvort leyfilegt sé að aka bíl vegna þess að lyfið getur skert hæfni til aksturs.
Áfengi:
Getur aukið á aukaverkanirnar, einkum öndunarbælingu. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Bannað í keppni.
Fíknarvandamál:
OxyNorm getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.