Imovane
Svefnlyf og róandi lyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Zópíklón
Markaðsleyfishafi: Sanofi | Skráð: 1. október, 1995
Imovane er svefnlyf. Lyfið inniheldur virka innihaldsefnið Zópíklón sem er benzódíazepínskyld lyf. Það eykur áhrif hamlandi boðefnis, GABA, á vissum stöðum í heila og styttir því tímann sem það tekur fólk að sofna, fækkar andvökum og lengir svefntíma. Í venjulegum skömmtum raskar lyfið ekki svefnmynstri og svefn verður eðlilegur. Lyfið ætti aðeins að nota í skamman tíma í senn vegna ávanahættu. Ef lyfið er notað lengi getur svefninn skyndilega versnað við það eitt að hætta töku lyfsins.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
3,75-7,5 mg fyrir svefn.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 30 mín. Tekur lengri tíma ef töflurnar eru teknar þegar sjúklingur liggur út af.
Verkunartími:
4-6 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ef þú sofnar án þess að taka lyfið skaltu sleppa skammti.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef lyfið hefur verið tekið í viku eða styttri tíma er hægt að hætta þegar ekki er lengur þörf á því. Ef það hefur verið tekið í lengri tíma skal hafa samband við lækni áður en töku þess er hætt.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Mjög stórir skammtar geta valdið löngum svefni og sljóleika, minnkað samhæfingu hreyfinga og skert viðbragð. Hafðu samband við lækni ef stórir skammtar hafa verið teknir.
Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar. Hætta á ávanabindingu eykst með aukinni meðferðarlengd.
Aukaverkanir
Um 10% sjúklinga sem taka Imovane finna fyrir einhverjum aukaverkunum. Algengasta aukaverkunin er biturt bragð í munni (um 4%). Sljóleiki er einnig algengur, en það er skammtaháð aukaverkun, eða minni líkur eru á því að hún komi fram eftir því sem skammtar eru minni.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Biturt bragð, munnþurrkur | |||||||
Breytingar á kynhvöt | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Ógleði, uppköst, niðurgangur | |||||||
Skapgerðarbreytingar, ofskynjanir | |||||||
Sljóleiki | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar |
Milliverkanir
Öll lyf sem hafa sljóvgandi áhrif á miðtaugakerfið geta aukið sljóvgandi áhrif Imovane og ætti því að forðast að taka þau samtímis.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Alphagan
- Brimonidin Bluefish
- Candizol
- Circadin
- Clarithromycin Krka
- Diflucan
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Klacid
- Melatonin Bluefish
- Melatonin Evolan
- Melatonin Teva
- Melatonin Vitabalans
- Mirvaso
- Rimactan
- Sativex
- Simbrinza
- Slenyto
- Sporanox
- Vfend
- Voriconazole Accord
- Xonvea
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú hafir einhvern tíma misnotað áfengi eða lyf
- þú takir einhver önnur lyf
- þú eigir við öndunarerfiðleika að stríða
- þú sért með kæfisvefn
Meðganga:
Lyfið má ekki nota á meðgöngu. Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið á ekki að nota með barn á brjósti.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Auknar líkur eru á aukaverkunum, minni skammtar eru notaðir.
Akstur:
Lyfið skerðir aksturshæfni. Þessi áhrif geta varað daginn eftir að lyfið er tekið og því ætti ekki að aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Eykur sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Fíknarvandamál:
Imovane getur verið vanabindandi. Ávanahætta er lítil en eykst eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma. Ávanahætta er einnig meiri hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.