Noritren
Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Nortriptýlín
Markaðsleyfishafi: Lundbeck | Skráð: 1. janúar, 1985
Noritren inniheldur virka efnið nortriptýlín. Lyfið er geðdeyfðarlyf og tilheyrir flokki þríhringlaga geðdeyfðarlyfja, sem eru svo nefnd vegna efnafræðilegrar byggingar sinnar. Lyf í þessum flokki voru þau fyrstu sem notuð voru við geðdeyfð en verkunarmáti og aukaverkanir þeirra flestra er svipaður. Þau hafa áhrif á flest einkenni geðdeyfðar, bæta skap og matarlyst, auka líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfin. Helstu gallar þríhringlaga geðdeyfðarlyfjanna eru þeir að aukaverkanir eru nokkuð tíðar og að töluverð hætta er á eiturverkunum ef mjög stórir skammtar eru teknir. Nortriptýlín hefur um margt svipuð áhrif og geðdeyfðarlyfið amitriptýlín. Nortriptýlín hefur þó lítil róandi áhrif og veldur síður aukaverkunum á borð við munnþurrk, hægðatregðu og sjónstillingartruflunum en mörg önnur þríhringlaga geðdeyfðarlyf. Lyfið er fyrst og fremst notað við geðdeyfð, og er skráð hér á landi eingöngu til notkunar gegn geðdeyfð. Það getur þó í sumum tilfellum komið að gagni við næturþvaglátum barna, eða þegar aðrar aðferðir hafa ekki gefið viðunandi árangur.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
25-75 mg í senn 2svar á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2-3 vikur.
Verkunartími:
Misjafn á milli einstaklinga.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ef fleiri en einn skammtur gleymast í röð skaltu hafa samband við lækni. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins lýkur. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni. Þegar meðferð er hætt skal minnka skammtinn smám saman í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Leitaðu læknis í öllum tilvikum. Ef vart verður við einkenni eins og hjartsláttarónot, krampa eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Ef munnþurrkur af völdum lyfsins er viðvarandi getur það skaðað tannhold og slímhúð í munni.
Aukaverkanir
Aukaverkanir lyfsins eru háðar skammtastærð og hverfa venjulega eftir nokkurra vikna meðferð eða ef skammtar eru minnkaðir.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Breytingar á kynhvöt | |||||||
Breytt bragðskyn | |||||||
Gula | |||||||
Hraður hjartsláttur | |||||||
Höfuðverkur, svimi, ógleði | |||||||
Krampar | |||||||
Munnþurrkur, hægðatregða, aukin svitamyndun | |||||||
Rugl | |||||||
Sjónstillingartruflanir | |||||||
Skapgerðarbreytingar, ofskynjanir | |||||||
Skjálfti | |||||||
Útbrot | |||||||
Þreyta | |||||||
Þvagtregða | |||||||
Þyngdaraukning |
Milliverkanir
Nortriptýlín má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum. Líða skulu a.m.k. 2 vikur á milli þess sem þessi tvö lyf eru gefin. Áhrif adrenergra lyfja (adrenalíns, noradrenalíns) og alkóhóls aukast ef þau eru gefin með nortriptýlíni. Barbitúrsýrusambönd geta dregið úr geðdeyfðarverkun lyfsins. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Alphagan
- Brimonidin Bluefish
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- Ephedrine Sintetica
- Mirvaso
- Multaq
- Simbrinza
Getur haft áhrif á
- Adrenalin Mylan
- Alimemazin Evolan
- Apidra
- Arcoxia
- Aritavi
- Atenolol Viatris
- Atomoxetin Actavis
- Atomoxetin Medical Valley
- Atomoxetine STADA
- Azilect
- Baclofen Sintetica í mænuvökva
- Baklofen Viatris
- Benylan
- Bisbetol
- Bisoprolol Medical Valley
- Bricanyl Turbuhaler
- Bufomix Easyhaler
- Bupropion Teva
- Buronil
- Candizol
- Captopril mixtúra - forskriftarlyf
- Carbocain adrenalin
- Catapresan (Undanþágulyf)
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Cinacalcet STADA
- Cinacalcet WH
- Cipralex
- Cipramil
- Cisordinol
- Cisordinol Acutard
- Cisordinol Depot
- Citalopram STADA
- CitraFleet
- Cleye
- Cleye (Heilsa)
- Cloxabix
- Clozapin Medical
- Clozapine Actavis
- Comtess
- Concerta
- Coversyl Novum
- Coxerit
- Coxient
- Cozaar
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Cymbalta
- Darazíð
- Daren
- Desmopressin Teva B.V.
- Desmopressin Zentiva
- Diflucan
- Duloxetin Krka
- Duloxetin W&H
- Duloxetine Medical Valley
- DuoResp Spiromax
- Efexor Depot
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril Krka
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Enerzair Breezhaler
- EpiPen
- EpiPen Junior
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Etoricoxib Krka
- Fesoterodine Medical Valley
- Fesoterodine Teva
- Fluanxol Depot
- Fluanxol Mite
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Mylan
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Flutiform
- Fontex
- Fungyn
- Glimeryl
- Haldol
- Haldol Depot
- Hypotron
- Inspra
- Invega
- Jext
- Laxoberal
- Laxoberal (Heilsa)
- Lioresal
- Litarex
- Losartan Medical Valley
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium Krka
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Losatrix
- Magical Mouthwash
- Marcain adrenalin
- Medikinet
- Medikinet CR
- Metadon 2care4
- Metadon Abcur
- Methylphenidate Medical Valley
- Methylphenidate Sandoz
- Methylphenidate STADA
- Methylphenidate Teva
- Metylfenidat Actavis
- Midodrin Evolan
- Minirin
- Nasogen
- Nitroglycerin DAK
- NOCDURNA
- Nozinan
- Olanzapin Actavis
- Oropram
- Otrivin Junior ukonserveret
- Otrivin Menthol (Heilsa)
- Otrivin Menthol ukonserveret
- Otrivin ukonserveret
- Otrivin utan konserveringsmedel (Heilsa)
- Oxis Turbuhaler
- Paliperidon Krka
- Paradorm
- Parkódín
- Parkódín forte
- Paxetin
- Paxlovid
- Peratsin
- Phenergan
- Picoprep
- Presmin
- Presmin Combo
- Prometazin Actavis
- Propranolol hydrochloride
- Ramíl
- Rasagilin Krka
- Ríson
- Risperdal
- Risperdal Consta
- Risperidon Krka
- Risperidone Teva GmbH
- Ritalin
- Ritalin Uno
- Salmeterol/Fluticasone Neutec
- Salmex
- SEM mixtúra
- Seretide
- Serevent
- Seroxat
- Stalevo
- Stalevo (Lyfjaver)
- Strattera (Lyfjaver)
- Symbicort (Lyfjaver)
- Symbicort forte Turbuhaler
- Symbicort mite Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler (Heilsa)
- Symbicort Turbuhaler (Lyfjaver) Noregur
- Tavegyl
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Terbinafin Actavis
- Terbinafin Medical Valley
- Toviaz
- Trandate
- TREVICTA
- Trilafon dekanoat
- Trimbow
- Trixeo Aerosphere
- Truxal
- Venlafaxin Actavis
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
- Ventoline
- Wellbutrin Retard
- Wellbutrin Retard (Lyfjaver)
- Xeplion
- Xylocain adrenalin
- Xylocain Dental Adrenalin
- Yentreve
- Zalasta
- Zeldox
- Ziprasidon Actavis
- Zyban
- Zypadhera
- Zyprexa
- Zyprexa Velotab
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með stækkaðan blöðruhálskirtil eða eigir erfitt með þvaglát
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru notaðir.
Akstur:
Lyfið getur haft áhrif á aksturshæfni og því skal ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.