Desmopressin Zentiva
Hormónalyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Desmópressín
Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s. | Skráð: 19. október, 2023
Desmopressin Zentiva er notað við flóðmigu tengdri miðtaugakerfi eða næturþvaglátum. Desmópressín, virka efni lyfsins, er efnafræðilega náskylt vasópressíni, hormóni sem er framleitt í heiladingli. Þetta hormón örvar endurupptöku vatns í nýrum og dregur þannig úr þvagmyndun. Desmópressín hefur sömu áhrif og vasópressín á nýrun en er með nokkuð lengri verkunartíma. Ólíkt vasópressíni veldur desmópressín mjög litlum samdrætti í æðum og hefur því óveruleg bein áhrif á blóðþrýsting. Nauðsynlegt er að draga úr vökvaneyslu á meðan lyfið er tekið. Ef það er ekki gert er hætta á því að vökvi safnist fyrir í líkamanum, en það getur leitt til alvarlegra aukaverkana.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Tungurótartafla.
Venjulegar skammtastærðir:
Flóðmiga: 60-120 míkrógrömm undir tungu 3svar á dag. Ósjálfráð næturþvaglát: Fullorðnir og börn eldri en 5 ára: 120-240 míkrógrömm fyrir svefn.
Leggja skal tungurótartöfluna undir tunguna, þar sem hún leysist upp án vatns.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1-2 klst.
Verkunartími:
8-12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Töflurnar geymast í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp töflu sem gleymst hefur að taka.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Einkenni sjúkdóms geta komið fram aftur þegar notkun lyfsins er hætt.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Ef lyfið er notað við næturþvaglátum er þörfin að nota lyfið endurmetin reglulega.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru fátíðar. Ef vökvainntaka er ekki minnkuð meðan lyfið er tekið getur það valdið vökvasöfnun og alvarlegri aukaverkunum.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Bjúgur í útlimum | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Kviðverkir | |||||||
Skapgerðarbreytingar | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | |||||||
Þyngdaraukning | |||||||
Ógleði, uppköst, niðurgangur, hægðatregða |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Alvofen Express
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Cipralex
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Diclomex
- Dimax Rapid
- Dropizol
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Mylan
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Fontex
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Immex
- Imodium
- Imodium (Heilsa)
- Klomipramin Viatris
- Loperamide Medical Valley
- Modifenac
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Noritren
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Oropram
- Parapró
- Paxetin
- Seroxat
- Sertral
- Sertralin Bluefish
- Sertralin Krka
- Sertralin WH
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Zoloft
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er almennt ekki notað fyrir börn yngri en 5 ára.
Eldra fólk:
Oft viðkvæmara fyrir aukaverkunum lyfsins. Nota þarf lyfið með varúð.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Hamlar myndun vasópressíns í heiladingli og eykur þannig þvagmyndun. Áfengi vegur á móti áhrifum lyfsins og því er ráðlegt að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan þörf er á því að taka lyfið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Ef þú tekur þetta lyf við næturvætu eða næturþvaglátum skaltu takmarka vökvaneyslu eins og hægt er frá því 1 klst. fyrir og 8 klst. eftir notkun.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.