Phenergan

Ofnæmislyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Prómetazín

Markaðsleyfishafi: Opella Healthcare France SAS | Skráð: 1. desember, 1972

Prómetazín, virka efnið í Phenergan, slær fyrst og fremst á ofnæmiseinkenni. Það hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má draga úr einkennum ofnæmis eða koma í veg fyrir þau. Prómetazín hefur einnig umtalsverða róandi og svæfandi verkun, enda er það notað sem róandi lyf og svefnlyf. Það getur enn fremur dregið úr ógleði og uppköstum og er stundum gefið fyrirbyggjandi við ferðaveiki (bíl-, sjó- eða flugveiki).


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
25-100 mg að kvöldi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
½-1 klst. Einkenni ofnæmis geta varað í nokkra daga eftir að byrjað er að taka lyfið.

Verkunartími:
4-6 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Ef munnþurrkur er viðvarandi getur þurrkurinn haft áhrif á slímhúð í munni og tannhold.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er syfja, sem kemur fram hjá 5-10% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Munnþurrkur          
Pirringur í fótum          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þvagtregða        
Sundl, syfja          

Milliverkanir

Lyfið eykur verkun lyfja sem hafa slævandi áhrif á miðtaugakerfið (sterk verkjalyf, svæfingalyf, flest geðlyf) og þríhringlaga þunglyndislyfja. Róandi áhrif lyfsins aukast við samtímis notkun áfengis.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með gláku
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
  • þú sért með þvagteppu eða stækkaðan blöðruhálskirtil
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með kransæðasjúkdóm

Meðganga:
Barnshafandi konur eiga ekki að nota Phenergan, sérstaklega ekki á seinni hluta meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.

Eldra fólk:
Getur verið viðkvæmara fyrir sumum aukaverkunum lyfsins.

Akstur:
Lyfið getur virkað sljóvgandi og skert aksturshæfni. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:
Getur aukið sljóvgandi áhrif prómetazíns. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.