Fluanxol Depot
Sefandi lyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Flúpentixól
Markaðsleyfishafi: Lundbeck | Skráð: 1. mars, 1977
Fluanxol Depot inniheldur virka efnið flúpentixól. Lyfið er sefandi og það dregur úr ofskynjunum, ranghugmyndum og hugsanavillum en hefur litla sem enga róandi verkun. Talið er að þessi einkenni komi fram vegna of mikillar virkni ákveðinna taugaboðefna þaðan sem skapferli, hegðun og skynjun er stjórnað í heila. Flúpentixól dregur úr áhrifum þessara taugaboðefna, en verkun lyfsins er þó aðallega að hafa áhrif á virkni dópamíns og serótóníns. Flúpentixól er notað í litlum skömmtum við geðdeyfð og hugsýki sem oft fylgir kvíði, framtaks- og þróttleysi, en líka í stærri skömmtum við geðklofasjúkdómi og annarri alvarlegri geðveiki. Lyfið er gefið í formi stungulyfs með forðaverkun þegar langtímameðferðar er þörf. Áhrifa lyfsins gætir víða í heila og þess vegna getur lyfið raskað jafnvægi boðefna þaðan sem stjórnun hreyfinga fer fram. Þetta getur leitt til hreyfitruflana, sem líkjast einkennum parkinsonsveiki og ósjálfráðra hreyfinga, en á þeim má ná stjórn, í flestum tilfellum með því að lækka skammta eða gefa önnur lyf.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Stungulyf með forðaverkun í vöðva.
Venjulegar skammtastærðir:
20-200 mg í senn á 2-4ra vikna fresti.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-3 dagar. Hámarksblóðþéttni eftir stakan skammt er 3-7 dögum eftir notkun stungulyfs.
Verkunartími:
2-4 vikur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Stungulyfið á að geyma varið ljósi.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
Langtímanotkun:
Nauðsynlegt er að fylgjast vel með sjúklingum í langtímameðferð, sérstaklega þeim sem taka stóra skammta. Notkun þeirra til lengri tíma getur leitt til síðkominna hreyfitruflana (tardive dyskinesia). Þær koma fram sem ósjálfráðar hreyfingar, oftast í andlitsvöðvum. Líkurnar aukast eftir því sem lyfið er notað lengur. Þessar aukaverkanir geta orðið óafturkræfar, en í flestum tilfellum ganga þær til baka á nokkrum mánuðum eftir að lyfjagjöf er hætt. Ungir sjúklingar fá síður þessar aukaverkanir og þær ganga frekar til baka hjá þeim eftir að lyfjagjöf lýkur. Lyfið getur einnig valdið þyngdaraukningu ef það er notað í langan tíma.
Aukaverkanir
Flestar aukaverkanir lyfsins eru skammtaháðar, þ.e. koma frekar fram og eru meiri eftir því sem skammtar eru stærri.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | |||||||
Hreyfitruflanir, parkinsonseinkenni | |||||||
Munnþurrkur, aukin munnvatnsmyndun | |||||||
Niðurgangur, hægðatregða | |||||||
Ógleði og uppköst | |||||||
Svimi, svefnleysi, svefntruflanir | |||||||
Útbrot | |||||||
Þokusýn | |||||||
Þvagtregða | |||||||
Þyngdaraukning |
Milliverkanir
Ef flúpentixól er notað samtímis meltingarfæralyfinu Primperan er meiri hætta á hreyfitruflunum. Lyfið getur aukið áhrif alkóhóls og annarra efna sem hafa slævandi áhrif á miðtaugakerfið.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Cipralex
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Dostinex
- Efexor Depot
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Mylan
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Fontex
- Klomipramin Viatris
- Mianserin Viatris (áður Mianserin Mylan)
- Míron
- Míron Smelt
- Mirtazapin Bluefish
- Mirtazapin Krka
- Noritren
- Oprymea
- Oprymea (Heilsa)
- Oropram
- Parkódín
- Parkódín forte
- Paxetin
- Pramipexole Alvogen
- SEM mixtúra
- Seroxat
- Sertral
- Sertralin Bluefish
- Sertralin Krka
- Sertralin WH
- Sifrol
- Venlafaxin Actavis
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
- Zoloft
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með blóðsjúkdóm
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með gláku
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú sért með æxli í nýrnahettum
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru notaðir.
Akstur:
Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.