Cleodette
Getnaðarvörn | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Dróspírenón Etinýlestradíól
Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. apríl, 2022
Cleodette er getnaðarvarnarlyf. Það flokkast til einfasa, samsettra, lágskammta getnaðarvarnarlyfja og inniheldur tvö virk efni (hormón), dróspírenón og etinýlestradíól. Dróspírenón er samtengt hormón og hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Etinýlestradíól virkar eins og kvenhormónið estradíól, en verkunartími þess er þó lengri þegar það er tekið inn. Allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags, samfleytt í 21 dag. Eftir 21 dag er gert hlé í 7 daga og verða þá blæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi, hvort sem tíðablæðingum er lokið eða ekki. Hver tafla inniheldur 3 mg dróspírenón og 20 míkrógrömm etinýlestradíól.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum
Verkunartími:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin. Samsettar getnaðarvarnatöflur geta þó hindrað útskilnað koffeins úr líkamanum. Æskilegt er að draga úr koffeinneyslu á meðan lyfið er tekið.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Gleymist að taka töflu þá er best að taka töfluna strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Líði fleiri en 36 klst. milli inntöku taflna þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Aðra getnaðarvörn þarf þá að nota samtímis töflunum næstu 7 dagana. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku getnaðarvarnarlyfja hvenær sem hentar.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjósti | |||||||
Brjóstastækkun, eymsli í brjóstum | |||||||
Gula, mjög mikill kláði | |||||||
Hækkaður eða lækkaður blóðþrýstingur | |||||||
Höfuðverkur, kviðverkir | |||||||
Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanir | |||||||
Skapsveiflur | |||||||
Truflanir á tíðablæðingum | |||||||
Þrymlabólur | |||||||
Þyngdaraukning |
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Amoxicillin Sandoz
- Amoxicillin Viatris
- Amoxicillin/Clavulanic Acid Normon
- Amoxin
- Apidra
- Aprepitant Medical Valley
- Aprepitant STADA
- Azithromycin STADA
- Azitromicina Normon
- Azyter
- Betolvex
- Braftovi
- Cardosin Retard
- Carduran Retard
- Cefotaxim Navamedic
- Cefuroxim Fresenius Kabi
- Cefuroxim Navamedic
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Ciprofloxacin Alvogen
- Ciprofloxacin Navamedic
- Circadin
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Clindamycin EQL Pharma
- Cloxabix
- Cloxacillin Navamedic
- Cloxacillin Vital Pharma Nordic
- Cotrim
- Dailiport
- Dalacin
- Decortin H
- Decutan
- Dicloxacillin Bluefish
- Doxazosin Krka
- Doxycyklin EQL Pharma
- Doxylin
- Emend
- Eusaprim
- Flagyl
- Flucloxacillin WH
- Furadantin
- Fycompa
- Genotropin
- Glimeryl
- Haiprex
- Idotrim
- Ikervis
- Isotretinoin ratiopharm
- Kåvepenin
- Kåvepenin Frukt
- Keflex
- Klacid
- Lamictal
- Lamotrigin ratiopharm (Lyfjaver)
- Melatonin Bluefish
- Melatonin Evolan
- Melatonin Teva
- Melatonin Vitabalans
- Metronidazol Actavis
- Metronidazol Baxter Viaflo
- Metronidazol Normon
- Modigraf
- Neotigason
- Norditropin FlexPro
- Omnitrope
- Oracea
- Orfiril
- Orfiril Retard
- Oxcarbazepin Jubilant
- Paxlovid
- Penomax
- Prednisolon - forskriftarlyf
- Prednisolon EQL Pharma
- Prednisolone Actavis
- Prograf
- Qsiva
- Rimactan
- Rivotril
- Rosuvastatin Actavis
- Rosuvastatin Krka
- Rosuvastatin Xiromed
- Saizen
- Sandimmun Neoral
- Selexid
- Síprox
- Slenyto
- Spectracillin
- Staklox
- Tamoxifen Mylan
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Topimax
- Topiramat Actavis
- Topiramate Alvogen
- Trileptal
- Trimetoprim Meda
- Warfarin Teva
- Zinacef
- Zitromax
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með rauða úlfa (lupus)
- þú sért með sykursýki
- þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
- þú reykir
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
Meðganga:
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Hætta á því að lyfið hafi áhrif á fóstur er þó talin hverfandi í þeim skömmtum sem það er notað.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Samsettar getnaðarvarnartöflur geta dregið úr magni og gæðum brjóstamjólkur.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Lyfið er eingöngu ætlað konum á barneignaraldri.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Reykingar auka hættuna á aukaverkunum, s.s. blóðtappa af völdum estrógena.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.