Levosert
Getnaðarvörn | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Levónorgestrel
Markaðsleyfishafi: Gedeon Richter Plc | Skráð: 1. september, 2015
Levosert er getnaðarvarnarlyf og nefnist lykkjan í daglegu tali. Lyfið inniheldur eitt virkt efni (hormón), levónorgestrel. Levónorgestrel er samtengt hormón sem hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Levónorgestrel veldur breytingum á slímhúð legsins með þeim afleiðingum að frjóvguð eggfruma nær síður að hreiðra þar um sig. Leghálsslímið þykknar og sáðfrumur eiga erfitt með að komast upp leghálsinn.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Hormónalykkja í leg.
Venjulegar skammtastærðir:
1 lykkja á 3 ára fresti, gefur frá sér 20 míkrógrömm á sólarhring.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1 sólarhringur.
Verkunartími:
Um 3 ár.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Engin hætta er á því að skammtur gleymist vegna staðsetningar lyfsins.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun getnaðarvarnarlyfs hvenær sem hentar.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Hverfandi hætta er á ofskömmtun. Ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Ákveðið nánar í samráði við lækni.
Aukaverkanir
Aukaverkanir eru algengari fyrstu mánuðina eftir uppsetningu, en hjaðna við langtíma notkun.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Breytingar á blæðingum | |||||||
Ógleði, höfuðverkur | |||||||
Skapbreytingar | |||||||
Spenna í brjóstum | |||||||
Útbrot, kláði | |||||||
Útferð | |||||||
Verkir í kviðarholi og baki | |||||||
Þyngdarbreytingar, bjúgur |
Milliverkanir
Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Advagraf
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Amoxicillin Sandoz
- Amoxicillin Viatris
- Amoxicillin/Clavulanic Acid Normon
- Amoxin
- Apidra
- Azithromycin STADA
- Azitromicina Normon
- Azyter
- Betolvex
- Cefuroxim Fresenius Kabi
- Cefuroxim Navamedic
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Ciprofloxacin Alvogen
- Ciprofloxacin Navamedic
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Clindamycin EQL Pharma
- Cloxabix
- Cotrim
- Dailiport
- Dalacin
- Decortin H
- Decutan
- Dicloxacillin Bluefish
- Doxycyklin EQL Pharma
- Doxylin
- Eusaprim
- Flagyl
- Flucloxacillin WH
- Furadantin
- Fycompa
- Glimeryl
- Haiprex
- Idotrim
- Ikervis
- Isotretinoin ratiopharm
- Kåvepenin
- Kåvepenin Frukt
- Keflex
- Klacid
- Lamictal
- Lamotrigin ratiopharm (Lyfjaver)
- Metronidazol Actavis
- Metronidazol Baxter Viaflo
- Metronidazol Normon
- Modigraf
- Neotigason
- Oracea
- Orfiril
- Orfiril Retard
- Oxcarbazepin Jubilant
- Penomax
- Prednisolon - forskriftarlyf
- Prednisolon EQL Pharma
- Prednisolone Actavis
- Prograf
- Qsiva
- Rimactan
- Rivotril
- Rosuvastatin Actavis
- Rosuvastatin Krka
- Rosuvastatin Xiromed
- Sandimmun Neoral
- Selexid
- Síprox
- Spectracillin
- Staklox
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Topimax
- Topiramat Actavis
- Topiramate Alvogen
- Trileptal
- Trimetoprim Meda
- Warfarin Teva
- Zinacef
- Zitromax
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Lyfið er venjulega ekki notað.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.