Largactil (afskráð feb. 2008)
óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Klórprómazín
Markaðsleyfishafi: óskráð
Largactil inniheldur virka efnið klórprómazín. Lyfið er sefandi og með breitt verkunarsvið. Það hefur hamlandi áhrif á mörg boðefnakerfi í heila og dregur úr sturlunareinkennum vegna geðklofa, oflætis, elliglapa eða inntöku efna (t.d. fíknilyfja eða áfengis). Það hemur einnig hitastjórnun líkamans og getur aukið áhrif verkjastillandi lyfja, svefnlyfja og svæfingalyfja. Auk þessa hefur það róandi áhrif. Klórprómazín má einnig nota við ógleði og langvarandi hiksta. Aukaverkanir af völdum klórprómazíns eru nokkuð algengar. Munnþurrkur og hreyfitruflanir, sem líkjast einkennum parkinsonsveiki, koma oft fyrir. Alvarlegustu aukaverkanir lyfsins eru síðkomnar hreyfitruflanir (tardive dyskinesia) sem koma fram eftir langtímanotkun lyfsins. Þessar aukaverkanir geta orðið óafturkræfar, en í flestum tilfellum ganga þær til baka á nokkrum mánuðum eftir að lyfjagjöf er hætt. Ungir sjúklingar fá þessar aukaverkanir síður og þær ganga frekar til baka hjá þeim eftir að lyfjagjöf lýkur.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru háðir ástandi sjúklings. Fullorðnir: 10-200 mg í senn 1-3svar á dag. Börn eldri en 5 ára: Þriðjungur til helmingur af fullorðinsskammti. Börn yngri en 5 ára: 0,5 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Töflurnar gleypist heilar.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
30-60 mín.
Verkunartími:
8-12 klst. Þegar lyfið hefur verið notað í langan tíma geta sum áhrif lyfsins varað í nokkrar vikur eftir að töku þess er hætt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta komið fram aftur ef töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
Langtímanotkun:
Hreyfitruflanir koma fremur fram ef lyfið er notað lengur en í nokkra mánuði í senn. Klórprómazín getur einnig valdið þyngdaraukningu og í sumum tilvikum gulu.
Aukaverkanir
Flestar aukaverkanir lyfsins eru skammtaháðar. Tíðni aukaverkana fer einnig eftir meðferðartíma og við hverju lyfið er notað. Þær algengustu eru þreyta, svimi og munnþurrkur, en parkinsonslík einkenni eru þær aukaverkanir sem takmarka helst notkun lyfsins.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Aukið ljósnæmi | ![]() |
![]() |
|||||
Aukin mjólkurmyndun | ![]() |
![]() |
|||||
Brjóstastækkun karlmanna | ![]() |
![]() |
|||||
Gula | ![]() |
![]() |
|||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Hraður hjartsláttur, lágur blóðþrýstingur | ![]() |
![]() |
|||||
Hreyfitruflanir, parkinsonseinkenni | ![]() |
![]() |
|||||
Krampar | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Útbrot, kláði | ![]() |
![]() |
|||||
Þreyta, svimi, munnþurrkur | ![]() |
![]() |
|||||
Þvagtregða | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Þyngdaraukning | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Akynzeo
- Aloxi
- Alphagan
- Amiloride / HCT Alvogen
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Atenolol Viatris
- Atomoxetin Actavis
- Atomoxetin Medical Valley
- Atomoxetine STADA
- Attentin
- Bloxazoc
- Brimonidin Bluefish
- Candpress Comp
- Cipralex
- Cipramil
- Citalopram STADA
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Darazíð
- Desmopressin Teva B.V.
- Desmopressin Zentiva
- Diamicron Uno
- Dostinex
- Efexor Depot
- Elvanse Adult
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Escitalopram Bluefish
- Escitalopram STADA
- Esopram
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Viatris
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Fontex
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Hydromed
- Inspra
- Klomipramin Viatris
- Litarex
- Logimax
- Logimax forte
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Madopar
- Madopar Depot
- Madopar Quick "125"
- Madopar Quick "62,5"
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Mianserin Viatris (áður Mianserin Mylan)
- Minirin
- Míron
- Míron Smelt
- Mirtazapin Bluefish
- Mirtazapin Krka
- Mirvaso
- NOCDURNA
- Noritren
- Oprymea
- Oprymea (Heilsa)
- Oropram
- Parkódín
- Parkódín forte
- Paxetin
- Pramipexole Alvogen
- Presmin Combo
- Propranolol hydrochloride
- Seloken
- Seloken ZOC
- SEM mixtúra
- Seroxat
- Sertral
- Sertralin Bluefish
- Sertralin Krka
- Sertralin WH
- Sifrol
- Signifor
- Simbrinza
- Sinemet 12,5/50
- Sinemet 25/100
- Sinemet depot mite
- Sotalol Mylan
- Stalevo
- Stalevo (Lyfjaver)
- Strattera (Lyfjaver)
- Trandate
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka (Heilsa)
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Venlafaxin Actavis
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
- Volidax
- Zoloft
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með parkinsonsveiki
- þú sért með stækkun í blöðruhálskirtli
- þú sért með sykursýki
- þú sért með vanvirkan skjaldkirtil
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú sért með öndunarfærasjúkdóm
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Minni skammtar eru notaðir.
Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum, meðferð hefst oft með smáum skömmtum.
Akstur:
Lyfið getur skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.