Inhibace (afskráð jan. 2010)
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Cílazapríl
Markaðsleyfishafi: óskráð
Inhibace, sem inniheldur virka efnið cílazapríl, tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í honum hamla myndun angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum og það eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lyfin hindra einnig niðurbrot æðavíkkandi efnis í líkama, bradýkíníns. Lyfin lækka því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Inhibace er notað við háþrýstingi og til þess að minnka álag á hjartað hjá hjartasjúklingum. Þvagræsilyf eru oft notuð samtímis cílazapríli, sérstaklega þegar lyfið er gefið við hjartabilun.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
0,5-5 mg í senn einu sinni á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi, helst alltaf á sama tíma dags.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Blóðþrýstingslækkandi verkun kemur fram um 1 klst. eftir inntöku. Hámarksverkun næst eftir 3-7 klst.
Verkunartími:
Allt að 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegt er að minnka skammta smám saman frekar en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Án vandkvæða.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir lyfsins eru höfuðverkur og svimi og koma fyrir hjá 3-5% þeirra sem taka lyfið. Flestar aukaverkanir lyfsins eru vægar og ganga yfir.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Gula | ![]() |
![]() |
|||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Hjartsláttartruflanir | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Hósti | ![]() |
![]() |
|||||
Höfuðverkur, svimi, þreyta | ![]() |
![]() |
|||||
Lágur blóðþrýstingur | ![]() |
![]() |
|||||
Ógleði, uppköst, niðurgangur | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Milliverkanir
Inhibace getur dregið úr kalíumtapi af völdum þvagræsilyfja.Það skal hafa í huga og fylgjast vel með kalíumþéttni í blóði hjá sjúklingum sem fá kalíumsparandi þvagræsilyf eða taka kalíum inn aukalega. Asetýlsalicýlsýra og bólgueyðandi lyf, sem ekki eru sterar (NSAID-lyf), geta dregið úr blóðþrýstingslækkandi áhrifum cílazapríls ef þau eru gefin á nákvæmlega sama tíma. Samtímis notkun blóðþrýstingslækkandi lyfja, t.d. beta-blokka, getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif cílazapríls. Cílazapríl getur aukið blóðsykurlækkandi áhrif insúlíns og sykursýkilyfja til inntöku.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Actrapid
- Allopurinol Alvogen
- Alvofen Express
- Alvofen Junior
- Amiloride / HCT Alvogen
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Apidra
- Arcoxia
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Candpress Comp
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Centyl med kaliumklorid
- Centyl mite med kaliumklorid
- Cloxabix
- Cotrim
- Coxerit
- Coxient
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Darazíð
- Decortin H
- Diamicron Uno
- Diclomex
- Dimax Rapid
- Dynastat
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Etoricoxib Krka
- Eusaprim
- Fem-Mono Retard
- Fiasp
- Furix
- Furosemide Kalceks
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Glucophage
- Humalog
- Humalog KwikPen
- Humalog Mix25 KwikPen
- Hydromed
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Idotrim
- Ikervis
- Imdur
- Impugan
- Inspra
- Insulatard
- Insulatard FlexPen
- Ismo
- Janumet
- Jentadueto
- Kaleorid
- Kalíum Klórið
- Kaliumklorid Orifarm
- Kaliumklorid Orifarm (Lyfjaver)
- Klomipramin Viatris
- Lantus [Clikstar]
- Lantus [Solostar]
- Levemir FlexPen
- Levemir Penfill
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Metformin Bluefish
- Metformin EQL
- Metformin Sandoz
- Metformin Teva B.V.
- Modifenac
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Nitroglycerin DAK
- Noritren
- Novo Mix 30 Penfill
- NovoMix 30 FlexPen
- NovoRapid
- NovoRapid FlexPen
- NovoRapid Penfill
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Parapró
- Prednisolon - forskriftarlyf
- Prednisolon EQL Pharma
- Prednisolone Actavis
- Presmin Combo
- Relifex
- Sandimmun Neoral
- Sitagliptin/Metformin Krka
- Sitagliptin/Metformin Medical Valley
- Sitagliptin/Metformin Sandoz
- Sitagliptin/Metformin Zentiva
- Spirix
- Spiron
- Strefen
- Strefen (Heilsa)
- Strefen Apelsin (Heilsa)
- Strefen Honung & Citron
- Strefen Honung & Eukalyptus
- Strefen Orange Sukkerfri
- Synjardy
- Toradol
- Toujeo [DoubleStar]
- Toujeo [Solostar]
- Trimetoprim Meda
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka (Heilsa)
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Vildagliptin/Metformin Krka
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.
Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.