Marbodin

Lyf við heilabilun | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Memantin

Markaðsleyfishafi: STADA Arzneimittel | Skráð: 1. júlí, 2017

Lyfið er við Alzheimerssjúkdómi. Alzheimerssjúkdómur er eitt algengasta form heilabilunar og lýsir sér í truflun á minni, hegðun og athöfnum daglegs lífs. Einstaklingar með Alzheimerssjúkdóm verða fyrst fyrir truflunum á skammtímaminni, síðar fylgja breytingar á hegðun og færni til þess að lifa daglegu lífi. Ástæður sjúkdómsins eru ekki að fullu skýrðar og við honum er engin lækning. Ein skýring sjúkdómsins er sú að röskun verði á vissum taugaboðum í heila, einkum NMDA-viðtaka, og það stuðli að sýnilegum einkennum og þróun sjúkdómsins. Memantín, virka efnið í lyfinu, virkar með því að hafa áhrif á þessa NMDA-viðtaka. Lyfið hindrar það að viss taugaboðefni í þeim sæki fastar á en önnur, og bætir um leið virkni NMDA-viðtakanna.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
5-20 mg einu sinni á dag, alltaf á sama tíma dagsins. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Mjög einstaklingsbundið.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin. Þó ber að varast að umturna mataræði sínu, hætta t.d. að borða kjöt og snúa sér alfarið að grænmeti.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mixtúran geymist í 3 mánuði frá opnun.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ef fleiri en einn skammtur gleymast í röð skaltu hafa samband við lækni. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Taktu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um. Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef barn tekur lyfið eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Óhætt er að nota lyfið í langan tíma, svo lengi sem það sýnir árangur og er það mat læknis hvenær hætta skal töku þess.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru svimi, höfuðverkur, hægðatregða, svefnhöfgi og hár blóðþrýstingur.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Andþrengsli          
Háþrýstingur          
Hægðatregða          
Höfuðverkur, svimi, svefnhöfgi          
Krampar          
Ofskynjanir, órói          
Útbrot, kláði          

Milliverkanir

Verkunarmáti lyfsins bendir til þess að það geti haft áhrif á parkinsonslyf og sefandi lyf.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur haft áhrif á viðbragðssnerpu, því skal gæta varúðar við akstur og notkun véla. Læknir ætti að meta hæfni Alzheimerssjúklings til aksturs.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Vegna sjúkdómseinkennanna er nauðsynlegt að umsjónarmaður sjúklingsins fylgist með lyfjatöku.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.