Nicotinell IceMint

Lyf gegn fíkn | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Nikótín

Markaðsleyfishafi: Haleon Denmark ApS | Skráð: 1. maí, 2010

Nikótínlyf eru notuð sem hjálpartæki til að auðvelda fólki að hætta að reykja eða til að draga úr reykingum. Ef nikótínþörf er mikil getur verið erfitt að hætta reykingum skyndilega. Lyfin skila nikótíni hægt út í blóðið, mun hægar og í minna magni en þegar reykt er, en það dugar til þess að slá á helstu fráhvarfseinkenni reykinga. Nicotinell IceMint er til sem tyggigúmmí en það er lyfjaform þar sem notandinn stjórnar sjálfur skömmtuninni. Lyfið frásogast um slímhúð í munni.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Tyggigúmmí.

Venjulegar skammtastærðir:
2-4 mg í senn eftir þörfum. Mest 25 stk. af 2 mg eða 15 stk. af 4 mg á sólarhring. Tyggja skal hægt og með hléum í u.þ.b. 30 mín.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
20-30 mín.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Forðast skal neyslu á súrum drykkjum 15 mín. fyrir notkun.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er aðeins notað eftir þörfum.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun lyfsins þegar ekki er lengur þörf á því.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Mjög stórir skammtar geta valdið ógleði, svitaköstum, æsingi og hröðum hjartslætti. Hafið samband við lækni ef stórir skammtar eru teknir.

Langtímanotkun:
Nikótínlyf eru aðeins ætluð til tímabundinnar notkunar meðan reykingum er hætt. Notkun í nokkra mánuði í senn er án vandkvæða. Venjulega er mælt með a.m.k. 3ja mánaða meðferð en ekki er mælt með lengri notkun en í 1 ár.


Aukaverkanir

Almennar aukaverkanir lyfsins, s.s. höfuðverkur og ógleði, eru sömu einkenni og koma fram við reykingar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin munnvatnsframleiðsla          
Brjóstsviði          
Eymsli í munni og koki, hiksti          
Hjartsláttarónot          
Höfuðverkur, sundl          
Ógleði, uppköst, óþægindi frá meltingarvegi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Þær breytingar sem verða á líkamanum við að hætta að reykja, með eða án meðferðar með lyfinu, geta haft áhrif á virkni annarra lyfja. Í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að breyta skömmtum. Ræddu við lækninn eða lyfjafræðing ef þú ert í vafa.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með magasár
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með æxli í nýrnahettum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með stækkaðan skjaldkirtil

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að nikótín hafi áhrif á fóstur. Ekki nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni. Hafa ber í huga skaðsemi reykinga fyrir fóstur.

Brjóstagjöf:
Nikótín berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára án samráðs við lækni.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Fíknarvandamál:
Nicotinell IceMint getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.

Annað:
Hætta skal reykingum meðan á meðferð stendur. Ráðgjöf og leiðsögn eykur líkur á árangri.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.