Spurðu sérfræðinginn
Lyfjafræðingar Lyfju svara fyrirspurnum um flest allt sem lýtur að heilbrigði og heilsu.
Senda inn spurningu Sjá allar spurningar og svörVið þekkjum vel orðið líkamsrækt og erum meðvituð um mikilvægi þess að hreyfa líkamann og gera æfingar sem efla líkamlega heilsu. Orðið geðrækt er kannski ekki alveg eins vel þekkt. Í stuttu máli felst geðrækt í því að hlúa að geðheilsunni eða andlegri heilsu með aðferðum sem miða að því að efla aðstæður, færni og lífsvenjur sem stuðla að aukinni andlegri vellíðan og heilsu.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir fræðir um núvitund en hún hefur iðkað Zen hugleiðslu síðastliðin 22 ár undir handleiðslu Zen meistarans Jakusho Kwong Roshi. Gyða er með með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu (EMPH) frá Háskólanum í Reykjavík.
Heilbrigður lífsstíll er mikilvægur fyrir almenna heilsu og vellíðan. Hann felur í sér að taka ákvarðanir sem stuðla að líkamlegri og andlegri heilsu með því að huga að hollu mataræði, reglulegri hreyfingu, nægum svefni og stjórna streitu. Allt eru þetta þættir sem geta fyrirbyggt sjúkdóma.