Spurðu sérfræðinginn
Lyfjafræðingar Lyfju svara fyrirspurnum um flest allt sem lýtur að heilbrigði og heilsu.
Senda inn spurningu Sjá allar spurningar og svörÍ meltingarvegi okkar eru flestar örverur líkamans. Þessar örverur eru gjarnan nefndar þarmaflóra eða meltingarflóra.
Góð meltingarflóra getur haft mikil áhrif á líkamlega og andlega líðan þína. Hún styrkir ónæmiskerfið, en yfir 70% af því er að finna í meltingarveginum.
Fræðandi fyrirlestur með Dr. Birnu G. Ásbjörnsdóttur um mikilvægi heilbrigðar meltingarflóru.
Í kringum jólin er oft mikið álag á meltinguna. Við borðum meira af þungum mat en við erum vön, meira af sykri og bara almennt meira magn en gengur og gerist. Þetta verður oft til þess að meltingin fer í hnút sem er það síðasta sem við erum í stuði fyrir í jólafríinu.