Lyrica

Flogaveikilyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Pregabalín

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. desember, 2004

Lyrica er notað í meðhöndlun á flogaveiki. Margar undirtegundir flogaveiki hafa verið skilgreindar eftir þeim einkennum sem fylgja flogunum og breytingum sem verða á heilastarfsemi á meðan þau ganga yfir. Einkenni flogaveiki stafa af óeðlilega mikilli virkni taugafrumna í heila og óvenju hárri tíðni taugaboða. Breytingar geta verið bundnar við lítinn hluta heilans (hlutaflog) eða náð yfir stóran hluta hans (alflog). Pregabalín, virka efnið í Lyrica, binst við kalsíumgöng í miðtaugakerfinu og dregur úr hæfileika frumna að senda frá sér boð. Pregabalín er notað sem viðbótarmeðferð við staðbundnum flogum í fullorðnum. Lyfið nýtist líka við meðhöndlun á útlægum taugaverkjum í fullorðnum en það eru langtímaverkir af völdum skemmda á taugum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
150-600 mg á dag í 2-3 skömmtum. Hylkin gleypist heil með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrifa lyfsins fer að gæta eftir u.þ.b. vikutíma.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ef fleiri en einn skammtur gleymast í röð skaltu hafa samband við lækni. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar hætt er að taka lyfið, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.

Langtímanotkun:
Takmörkuð reynsla, mönnum virðist ekki hætta búin af langvarandi notkun.


Aukaverkanir

Alvarlegar aukaverkanir eru sjaldgæfar. Algengustu aukaverkanir lyfsins eru svefnhöfgi og sundl. Fái sjúklingur flogakast, sem tekur lyfið reglulega við flogaveiki, skal hafa samband við lækni strax.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin matarlyst          
Bjúgur          
Breytt húðskyn          
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Hægðatregða, uppköst, vindgangur          
Minnkuð kynhvöt eða getuleysi          
Munnþurrkur          
Mæði        
Ósamhæfðar hreyfingar, skjálfti, tormæli          
Sjóntruflanir          
Skortur á einbeitingu, minnisleysi          
Svefnhöfgi, sundl, svimi, þreyta          
Útbrot, kláði          
Vellíðunartilfinning, rugl, skapstyggð          
Ölvunartilfinning          

Milliverkanir

Lyfið getur aukið áhrif áfengis og róandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið, áfengi getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.