Somadril comp. (afskráð apr. 2008)

óskráð | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Karísópródól Koffein Paracetamól

Markaðsleyfishafi: óskráð

Somadril comp inniheldur virku efnin karísópródól, paracetamól og koffein. Lyfið er notað við stoðkerfisverkjum. Karísópródól hefur vöðvaslakandi og verkjastillandi áhrif og er mest notað við verkjum í stoðkerfi, sérstaklega vöðvaverkjum. Það hefur einnig talsverð róandi áhrif, eins og almennt gildir um vöðvaslakandi lyf. Karísópródól virkar sljóvgandi, sérstaklega í upphafi meðferðar. Paracetamól er verkjastillandi og hitalækkandi. Það hentar við vægum verkjum ef bólga er ekki til staðar. Paracetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Paracetamól ertir ekki magaslímhúð og hentar því þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga. Koffein virkar örvandi á miðtaugakerfið og dregur úr sljóvgandi áhrifum karísópródól.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
1 tafla í senn 3-4 sinnum á dag. Hver tafla inniheldur 200 mg karísópródól, 160 mg paracetamól og 32 mg koffein.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif lyfsins koma fram á ½ klst. og ná hámarki eftir 4 klst.

Verkunartími:
Eftir töku eins skammts vara áhrifin í 4-6 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef liðinn er lengri tími en 1 klst. frá því að taka átti lyfið skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Mjög stórir skammtar geta valdið lifrarskemmdum.

Langtímanotkun:
Notkun lyfsins í langan tíma eykur hættu á ávanabindingu. Langvarandi notkun paracetamóls getur valdið nýrnaskemmdum. Því skal forðast að nota lyfið í langan tíma samfellt.


Aukaverkanir

Sljóleiki er algengasta aukaverkun lyfsins og kemur fyrir hjá um 10% þeirra sem nota lyfið. Við áframhaldandi notkun eða minnkun á skammti hverfur sljóleikinn oftast.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Syfja, sljóleiki          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Karísópródól getur magnað sljóvgandi áhrif róandi lyfja og svefnlyfja. Skammtabreytingar geta verið nauðsynlegar við meðferð með ákveðnum sýklalyfjum, lyfjum sem auka útskilnað þvagsýru, geðdeyfðarlyfjum og adrenvirkum lyfjum. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur aukið sefandi áhrif lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur haft sljóvgandi áhrif og valdið þokukenndri sjón og þannig skert aksturshæfni. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Fíknarvandamál:
Somadril comp. getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.