Pevaryl Depot (Heilsa)

Lyf við sýkingum í kynfærum kvenna | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Ekónazól

Markaðsleyfishafi: Trimb Healthcare | Skráð: 7. nóvember, 1996

Ekónazól hefur sveppaheftandi verkun. Það hefur áhrif á sveppategundir sem eru algengastar að valda sýkingum í húð og leggöngum. Lyfið hefur einnig áhrif á nokkrar tegundir baktería. Ekónazól er notað við sveppasýkingum í húð og á kynfærum en það hefur ekki áhrif á sveppasýkingar undir nöglum eða í hársverði. Pevaryl depot kemur sem legstílar og krem og er notað við sýkingum í kringum kynfæri.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Krem og legstílar með forðaverkun.

Venjulegar skammtastærðir:
Krem: Borið á skapabarma og/eða getnaðarlim 2-3svar á dag þar til einkenni hverfa og í 3 daga til viðbótar. Legstílar: 1 stíll að kvöldi (með forðaverkun og verkar í 3 daga).

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að verka en einkenni sýkingarinnar geta þó varað í einhvern tíma eftir að byrjað er að nota lyfið.

Verkunartími:
Legstílar með forðaverkun: Allt að 3 sólarhringar. Krem: 8-24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er aðeins notað í tiltekinn tíma við tilfallandi sýkingu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Ekónazól er aðeins ætlað við tilfallandi sýkingum.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Kláði, sviði, roði, mikill verkur          
Útbrot, bjúgur og mikill kláði        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna

Meðganga:
Lyfið má ekki nota á fyrsta þriðjungi meðgöngu nema samkvæmt læknisráði.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum nema samkvæmt læknisráði.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Efni í Pevaryl legkremi og -stílum geta skemmt latexsmokka og -hettur. Varist að lyfið berist í augu.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.