Ertu að fara í frí?
Í apótekum Lyfju fæst úrval vara sem koma sér vel að hafa með í ferðalaginu innanlands í sumar eins og t.d sjúkratöskur, sólarvarnir, hælsærisplástrar, ofnæmislyf, húð- og hárvörur í ferðastærðum, flugnafælur, þynnkubanar og margt fleira sem hjálpar þér að njóta frísins enn betur í sumar.
Sjúkratöskur og sjúkrakassar
Til eru margar tegundir sjúkrakassa og nauðsynlegt er að búa heimili, sumarbústaði, bíla og vinnustaði góðum og viðeigandi sjúkrakassa. Eins hefur það sýnt sig að litlar og léttar sjúkratöskur geta gert gæfumuninn ef óhapp verður, t.d. í fjallgöngunni.
Hár-og snyrtivörur í ferðastærðum
Í apótekum Lyfju fást hársnyrtivörur í ferðastærðum sem taka lítið pláss frá merkjum eins og LeaLuo, John Frieda og Sóley
Tannhirða í ferðastærðum
Hægt er að fá tannkrem í ferðastærðum frá Colgate og dr. organic og tannbursta frá GUM, Humble og Ortodent. Að auki fæst einnig ferðasett frá GUM sem inniheldur tannþráð, tannstöngla, tannkrem og tannbursta.
Húðvörur og sturtusápur í ferðastærðum
Lyfju býður sápur og líkamskrem í ferðastærðum frá mörgum flottum vörumerkjum eins og Eucerin, Lancome, Clinique, Smashbox, Glamglow, Biotherm, Dr. Hauschka, Lavera og Bioeffect.
Sólarvarnir fyrir fjölskylduna
Það er mjög gott úrval af sólarvörnum frá t.d Evy, Vichy, La-Roche, Eucerin, Garnier ofl. fyrir börn og fullorðna í apótekum Lyfju um land allt og er stuðillinn allt frá SPF10 uppí SPF50, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Hælsæriplástrar
Compeed hælsærisplástrar, stifti og líkþornaplástar er gott að hafa með í bakpokanum eða veskinu þegar ætlunin er að ganga mikið.
Þynnkubanar
Nuun , After Party og Treo gætu hjálpað í að lágmarka þynnku eftir góða skemmtun og hjálpa til við niðurbrot áfengis í líkamnum sem veldur helst einkennum timburmanna. Skoða úrval
Ofnæmislyf
Ef þú ert með ofnæmi getur starfsfólk Lyfju aðstoðað þig við að finna réttu lausnina sem hentar þér. Kíktu við í næsta apótek og fáðu aðstoð.
Flugnafælur og after bite
Til að forðast flugna-eða mýbit er gott að hafa flugnafælur með á ferðalaginu. Effitan úðinn er t.d með mikla virkni. Hann virkar vel á moskítóflugur, mý, flugur, flær og skógarmítla í allt að 8 klukkutíma.
- Skoða hér
Smokkar
Það gæti komið sér vel fyrir suma að taka smokka með í fríið. Í apótekum Lyfju fást smokkar frá Durex í mörgum gerðum.
Eyrnatappar fyrir flug, sund og hávaða
Eyrnatappar geta verið algjör nauðsyn á ferðlaginu, eins og t.d á tjaldstæðinu, í fluginu og fyrir litlu börnin að nota í sundi. Hjá Lyfju fæst úrval eyrnatappa fyrir börn og fullorðna.
Mildison Lipid
Mildison Lipid inniheldur hýdrókortisón en það er sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Lyfið er notað staðbundið til þess að draga úr bólgum, kláða og ofnæmiseinkennum, en það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið.
Viltu skoða fleiri áhugaverðar vörur?
SKOÐA FERÐASTÆÐIR HÉR Í NETVERSLUN LYFJU
Athugið að vöruúrval getur verið mismunandi á milli apóteka Lyfju á landinu. Breiðasta vöruúrvalið er að finna í Lyfju Lágmúla og Smáratorgi.
Mynd: www.123rf.com