Lóritín
Ofnæmislyf | Verðflokkur: G/0 | Lausasölulyf
Virkt innihaldsefni: Lóratadín
Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. október, 2000
Lóratadín, virka efnið í Lóritín, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns er dregið úr einkennum ofnæmis eða komið í veg fyrir þau. Lóratadín vinnur á ofnæmi, ofnæmisbólgum í nefi og einnig útbrotum og kláða af völdum histamíns. Lyfið er einnig notað við ofsakláða. Ólíkt mörgum ofnæmislyfjum hefur lóratadín óveruleg róandi og sljóvgandi áhrif. Sjá SPC texta og fylgiseðil hér.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn 2ja ára og eldri sem eru þyngri en 30 kg: 10 mg á dag. Börn 2ja ára og eldri sem eru léttari en 30 kg: 5 mg á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1 klst. Einkenni ofnæmis geta þó varað í nokkra daga eftir að byrjað er að taka lyfið.
Verkunartími:
1-2 sólarhringar eftir stakan skammt. Allt að 8 sólarhringar eftir stöðuga notkun.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Ef munnþurrkur er viðvarandi getur þurrkurinn haft áhrif á slímhúð í munni og tannhold.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar. Algengar aukaverkanir barna á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur, taugaveiklun og þreyta.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Aukin matarlyst | |||||||
Gula | |||||||
Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot | |||||||
Höfuðverkur | |||||||
Munnþurrkur | |||||||
Ógleði | |||||||
Svefnhöfgi | |||||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Alutard SQ, birkifrjo
- Alutard SQ, derm. pter.
- Alutard SQ, hundahar
- Alutard SQ, kattahar
- Alutard SQ, vallarfoxgras
- Grazax
- Hypotron
- Midodrin Evolan
- Paxlovid
- Soluprick Negativ kontrol
- Soluprick Positiv kontrol
- Soluprick SQ ALK108 - Birkifrjó
- Soluprick SQ ALK225 - Vallarfoxgras
- Soluprick SQ ALK504 - Rykmaur
- Soluprick SQ ALK552 - Hrossaværur
- Soluprick SQ ALK553 - Hundahár
- Soluprick SQ ALK555 - Kattahár
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur engin eða óveruleg áhrif á aksturshæfni. Lyfið getur valdið syfju í einstaka tilfellum.
Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.