Pariet

Lyf við sársjúkdómi | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Rabeprazól

Markaðsleyfishafi: Eisai | Skráð: 1. maí, 2001

Virka efnið rabeprazól dregur úr myndun magasýru. Það er notað við sársjúkdómi í maga og skeifugörn, bólgu í vélinda vegna bakflæðis magasýru og Zollinger-Ellison heilkenni. Það er einnig notað ásamt sýklalyfjum við sýkingu af völdum bakteríunnar Helicobacter pylori. Ef ekki tekst að uppræta Helicobacter-sýkingu veldur hún endurteknum magasárum, en til þess að vinna á bakteríunni þarf bæði sýklalyf og lyf sem minnka magasýruframleiðslu. Rabeprazól hindrar það að magasýra losnar úr sýrumyndandi frumum og dregur þannig úr framleiðslu magasýru. Lyfið þolist almennt vel og aukaverkanir þess eru vægar og skammvinnar.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Sýruþolnar töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
10-20 mg á dag að morgni. Stærri skammtar við Zollinger-Ellison heilkenni. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má hvorki tyggja þær né mylja.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif á framleiðslu magasýru koma fram um 1 klst. eftir inntöku.

Verkunartími:
Allt að 48 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Fylgið leiðarvísi um geymsluþol eftir að ytri umbúðir hafa verið rofnar.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Fylgjast skal reglulega með sjúklingum í langtímameðferð.


Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru yfirleitt vægar og skammvinnar. Algengastar eru höfuðverkur, niðurgangur og ógleði.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga í nefi og koki          
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hósti          
Höfuðverkur, svimi          
Kviðverkir          
Ógleði og uppköst          
Svefnleysi          
Sýkingar          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir          
Þróttleysi, flensulík einkenni          
Niðurgangur, hægðatregða, vindgangur          

Milliverkanir

Reykingar geta dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þreytu. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Getur ert magaslímhúð. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.