Kabiven

Lausnir til næringar í æð | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Blöndur

Markaðsleyfishafi: Fresenius Kabi AB | Skráð: 27. maí, 2003

Kabiven er lausn sem inniheldur næringarefni og er gefið í æð þeim sem eru ófærir um að neyta hefðbundins matar. Kabiven inniheldur amínósýrur, fitu, glúkósa og blóðsaltalausnir.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Innrennslislyf.

Venjulegar skammtastærðir:
Lyfið er gefið með hægu innrennsli í miðlæga bláæð á 12-24 klst. tímabili. Skammtur Kabiven fer eftir líkamsþyngd og hæfni líkamans til að vinna úr fitu og sykri.

Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Á ekki við.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ólíklegt er að of mikið sé gefið af innrennslinu þar sem læknirinn eða hjúkrunarfræðingur hafa eftirlit með þér á meðan meðferðinni stendur. Einkenni ofskömmtunar geta verið ógleði, uppköst, aukin svitamyndun og bjúgur. Láttu lækninn eða hjúkrunarfræðing vita strax ef þú færð einhver einkenni eða heldur að þú hafi fengið of mikið af Kabiven.

Langtímanotkun:
Við langtíma næringargjöf í bláæð þarf að huga að skömmtun snefilefna þar sem aukinn þvagútskilnaður snefilefnanna kopars og sinks fylgir í kjölfar innrennslis amínósýra í bláæð.


Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Höfuðverkur, þreyta          
Magaverkur, ógleði          
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar        
Lítillega hækkaður líkamshiti          

Milliverkanir

Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um öll önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð eða kynnu að verða notuð. Og þá sérstaklega heparín, warfarín eða insúlín.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm
  • þú sért með háa blóðfitu
  • þú sért með sýkingu
  • þú sért með ofnæmi fyrir eggjum
  • þú sért með ofnæmi fyrir hnetum og soja
  • þú sért með blóðstorknunarsjúkdóm
  • líkami þinn inniheldur of mikinn vökva (ofvökvun)

Meðganga:
Engar sértækar rannsóknir hafa verið gerðar til að meta öryggi Kabiven á meðgöngu. Læknirinn verður að vega og meta kosti og galla áður en Kabiven er gefið á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Engar sértækar rannsóknir hafa verið gerðar til að meta öryggi Kabiven við brjóstagjöf. Læknirinn verður að vega og meta kosti og galla áður en Kabiven er gefið konum með barn á brjósti.

Börn:
Lyfið er ætlað börnum frá 2 ára aldri.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.