Fluticasone Alvogen (áður Nasofan)

Neflyf | Verðflokkur: G/0 | Lausasölulyf/Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Flútíkasónprópíónat

Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 14. september, 2023

Flútíkasónprópíónat er notað við bólgusjúkdómum og ofnæmiseinkennum. Það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Lyfið hefur almennt sömu áhrif og svokallaðir sykursterar sem myndast í nýrnaberki. Flútíkasónprópíónat dregur líka úr flæði á bólgumyndandi efnum til lungna og getur með því móti minnkað eða útrýmt bólgum í nefi og lungum. Fluticasone Alvogen er notað við nefkvefi en nefkvef er bólgusjúkdómur. Regluleg notkun flútíkasónprópíónats minnkar bólgurnar og slær á einkennin, óháð því hvort sjúkdómurinn er af völdum ofnæmis eða ekki.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Nefúði.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1-2 skammtar í hvora nös 1 sinni á dag, helst að morgni. Yfirleitt er byrjað á 2 skömmtum í hvora nös 1 sinni á dag og síðan minnkað niður í 1 skammt í hvora nös 1 sinni á dag þegar stjórn hefur náðst á einkennum. Börn 4-11 ára: 1 skammtur í hvora nös einu sinni á dag, helst að morgni. Börn og unglingar yngri en 18 ára eiga ekki að nota lyfið nema í samráði við lækni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að virka en sjúklingur verður ekki var við breytingu fyrr en að 2-3 dögum liðnum.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur en bólgurnar koma smám saman aftur ef sjúkdómurinn er til staðar og töku lyfsins er hætt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Æskilegt er að læknir fylgist reglulega með árangri meðferðarinnar. Ef nefúðinn er notaður í langan tíma þarf að fylgjast reglulega með nefslímhimnunni.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Blóðnasir          
Höfuðverkur          
Óæskilegt bragð og lykt          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þurrkur og erting í nefi og hálsi          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með skerta starfsemi nýrnahettna

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 4ra ára. Hjá börnum 4ra ára og eldri er lyfið aðeins notað í samráði við lækni.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.