Eyrnahreinsun og heyrnarmæling
Lyfja býður upp á nýja þjónustu hjá hjúkrunarfræðingum Lyfju Lágmúla en þangað getur þú mætt í eyrnahreinsun og einfalda heyrnarmælingu sem gefur til kynna hvort heyrnarskerðing geti verið til staðar. Tímapantanir eru óþarfar. Opið er frá klukkan 8-16 virka daga.
Hjúkrunarfræðingur framkvæmir heyrnarskimunarpróf til að kanna hvort um heyrnarskerðingu sé að ræða og hjálpar þér að leita frekari aðstoðar heyrnarfræðings eða háls- og eyrnalæknis ef þörf krefur.
Þjónusta | Almennt verð | Eldri borgarar og öryrkjar |
---|---|---|
Eyrnahreinsun og einföld heyrnarmæling | 4.990 kr. | 3.990 kr. |
Kynntu þér hjúkrunarþjónustu Lyfju hér