Cryo Sorbet Mask
1 af 9
Cryo Sorbet Mask
4 stkKóreskur maski sem breytist úr dufti í sorbet. Hann kælir húðina samstundis, dregur úr þrota, minnkar svitaholur og eykur ljóma. Maskinn hentar viðkvæmri húð og er húðlæknaprófaður. Þessi byltingarkenndi blöndunarmaski er innblásinn af kóreskum „depuffing“ húðrútínum.
Brjóttu einn af fjórum pökkunum af, bættu vatni við duftið og hrærðu þar til þú færð ískaldan sorbet-maska sem frískar upp á þreytta húð á aðeins 10 mínútum. Fullkomin á morgnana, sem undirbúningur fyrir förðun eða þegar þú vilt fara úr þrútinni húð yfir í ljómandi húð á stuttum tíma. Maskinn er auðgaður með B12-vítamíni og CoolGlyco Technology™, sem inniheldur meðal annars erýtrítól og súkrósa sem lækka hitastig húðarinnar samstundis.
SODIUM CARBOXYMETHYL STARCH, SUCROSE, ERYTHRITOL, CYANOCOBALAMIN, CERAMIDE NP, ETHYLHEXYLGLYCERIN,
CAPRYLYL GLYCOL, SALICYLIC ACID,
HYDROXYACETOPHENONE, TOCOPHEROL, SODIUM DEHYDROACETATE * Please be aware that ingredient lists may change or vary from time to time. Please refer to the ingredient list on the product package you receive for the most up to date list of ingredients.
Brjóttu einn pakka af. Opnaðu varlega til að forðast að duftið hellist niður.
Bættu hreinu vatni við upp að merktu línunni - ekki meira. Notaðu lítinn vatnsþrýsting til að koma í veg fyrir að duftið sullist.
Bíddu í 10 sekúndur og hrærðu síðan vel með spaðanum sem fylgir með. Berðu jafnt lag á andlitið, leyfðu maskanum að sitja í 10 mínútur og skolaðu hann síðan af með vatni.
Ráð: Ef þú vilt aukna kælingu geturðu sett maskann (eftir blöndun) inn í ísskáp í 10 mínútur áður en þú berð hann á. Má ekki setja í frysti.







