Sjálfbærni og samfélag
Sjálfbærni og samfélag
Lyfja hefur einsett sér að stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan í gegnum öll lífsins skeið. Lyfja hefur einnig markað sér þá stefnu að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og umhverfisáhrifa vegna lyfjanotkunar.

Lyfja hefur einsett sér að stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan í gegnum öll lífsins skeið. Stærsta ábyrgð Lyfju gagnvart samfélaginu er að vinna að sýn félagsins um að auka lífsgæði, efla heilbrigði og tryggja lyfjaöryggi um allt land.
Lyfja skuldbindur sig til að takmarka umhverfisáhrif starfsemi sinnar og styðja við heilbrigðara samfélag með notkun umhverfisvænna orkugjafa, ábyrgri förgun lyfja og vistvænu vöruúrvali. Að auki leitum við stöðugt leiða til að bæta árangur okkar og styðja við heildrænna val viðskiptavina, með heilsu og umhverfið að leiðarljósi.
Lyfjaskil
Örugg eyðing lyfja eru eitt mikilvægasta umhverfisverkefni Lyfju. Lyf geta valdið skaða á umhverfinu og mega aldrei fara í rusl, vask eða klósett. Því miður mælast reglulega efni sem eru talin vera ógn við lífríki og vatnaumhverfi í sýnum Umhverfisstofnunar. Lyfja hvetur viðskiptavini til þess að skila gömlum lyfjum til eyðingar í apótek Lyfju.
Öllum lyfjum sem afhent eru til eyðingar í apótekum Lyfju er komið í örugga eyðingu hjá fyrirtækjum sem hafa leyfi frá Umhverfisstofnun til að eyða slíkum úrgangi. Flutningskeðjan frá apótekum Lyfju til eyðingarfyrirtækis er jafnframt lokuð þannig að lyfin komast ekki í hendur óviðkomandi á leiðinni.

Aðgengilegar upplýsingar
Aðgengi að áreiðanlegum og skiljanlegum upplýsingum er hluti af sjálfbærni Lyfju. Lyfja á og rekur Lyfjabókina, sem veitir almenningi aðgang að upplýsingum um öll skráð lyf á Íslandi og er samþætt Lyfju appinu. Með netspjalli við sérfræðinga og fræðsluviðburðum er stuðlað að öruggari lyfjanotkun og aukinni meðferðarheldni.
Hrein vara í Lyfju
Hrein vara í Lyfju er mikilvægt framlag til bæði heilsu og umhverfis. Með vottuninni eru valdar húðvörur sem eru lausar við óæskileg efni fyrir líkamann og umhverfið. Húðvörurnar eru rýndar af sérfræðingi og uppfylla strangar kröfur um innihald, sem einfaldar upplýst val neytenda og dregur úr skaðlegum áhrifum.
Fyrirbyggjandi
Fyrirbyggjandi fræðsla og ráðgjöf eru lykilþættir í samfélagslegri ábyrgð Lyfju. Með aðgengi að lyfjafræðingum og öðrum sérfræðingum er markmiðið að efla heilbrigði og styðja við forvarnir gegn lífsstílstengdum sjúkdómum.
Lyfja veitir einnig styrki árlega til heilsueflandi og fyrirbyggjandi verkefna.
Með samfélagsverkefnum á borð við Vöggugjöf Lyfju er jafnframt stutt við fjölskyldur á mikilvægum tímamótum og tryggt jafnt aðgengi að upplýsingum og stuðningi.
Félagslegir þættir
Til að uppfylla sýn Lyfju um að auka lífsgæði og efla heilsu ætlum við að vera eftirsóttasti vinnustaður fagfólks í apótekum á Íslandi.
Sjálfbærni byrjar með sterku Lyfjuliði
Með skýrum og mælanlegum markmiðum fylgjumst við með að menning okkar og umhverfi styðji við fagmennsku, vellíðan og traust – til hagsbóta fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samfélagið.











