UV-stuðull
UV-STUÐULL
Því hærri sem UV-stuðullinn er, því mikilvægara er að nota sólarvörn og vernda húðina.
UV-stuðull er alþjóðlegur mælikvarði á styrk útfjólubrárrar geislunar frá sólinni á tilteknum stað á tilteknum degi. Geislavarnir ríkisins mæla hámarskgildi UV-stuðuls í Reykjavík og uppfærist gildið á um hálftíma fresti.
Hvað er UV-stuðull?
UV-stuðull sýnir hversu sterk útfjólublá geislun sólarinnar er hverju sinni og hversu hratt húðin getur brunnið í sólinni. Því hærri sem UV-stuðullinn er, því mikilvægara er að nota sólarvörn og vernda húðin
Stuðullinn nær frá einum upp í 11+. Þegar stuðullinn er 1-2 er ekki þörf á að verja sig gegn sólargeislun en þegar hann er hærri þarf að verja húðina fyrir sólbruna.
UV-stuðull segir ekki bara til um hitastig. Hægt er að fá sólbruna jafnvel þegar það er kalt eða skýjað. Það er mælt með að nota sólarvörn með SPF30-50 sólarvarnarstuðli, bera á sig vörn á tveggja tíma fresti og forðast sterka sól um miðjan dag. UV er yfirleitt hæst á Íslandi á milli klukkan 11-15 á daginn.
UV-stuðullinn
| UV | Áhætta | Ráð |
| 1-2 | Lítil hætta á sólbruna. | Lítil þörf á sólarvörn. |
| 3-5 | Miðlungs hætta á sólbruna. | Nota sólarvörn með SPF30/50. |
| 6-11+ | Há/mjög há hætta á sólbruna. Óvarin húð getur brunnið fljótt. | Nota sólarvörn með SPF30/50 og hatt, vera í skugga. |

Magn af sólarvörn á andlit og líkama
- Andlit | Tvær fingurlengdir af sólarvörn.
- Líkami | 30 ml af sólarvörn fyrir allan líkamann eða um eitt staupglas.
Sólarvarnir fyrir andlit
Hver er munurinn á styrkleika SPF í sólarvörnum?
SPF segir til um hversu vel sólarvörn verndar gegn UVB-geislum, þeim geislum sem valda sólbruna en UVA í sólarvörn ver m.a gegn öldrun húðarinnar. Margir halda að SPF100 sé tvöfalt betra en SPF50, en munurinn er í raun miklu minni en fólk heldur.
Munurinn á SPF sólarvarnarstuðlum
| Vörn gegn UVB-geislum | |
| SPF10 | ~90% |
| SPF15 | ~93% |
| SPF20 | ~95% |
| SPF30 | ~97% |
| SPF50 | ~98% |
| SPF100 | ~99% |
Sólarvarnir fyrir líkamann
Hvað þýða þessar merkingar á sólarvörnum?
Vörn fyrir UVB-og UVA-geislum
Broad Spectrum og Mineral sólarvarnir
Börn og sól
Sól er mikilvæg fyrir heilsu okkar, meðal annars vegna þess að hún hjálpar líkamanum að mynda D-vítamín. Hins vegar er mikilvægt að gæta varúðar, sérstaklega þegar kemur að börnum. Húð barna er viðkvæmari en húð fullorðinna og því eru þau mun líklegri til að fá sólbruna.
Til að vernda börn gegn skaðlegum áhrifum sólar er mikilvægt að nota sólarvörn með háum verndarstuðli, SPF30 eða SPF50, bera hana á húðina áður en farið er út og endurtaka reglulega, sérstaklega eftir sund eða mikla hreyfingu. Einnig er gott að láta börn bera léttan hlíðarfatnað, húfu og sólgleraugu.
Best er að forðast beina sól á heitasta tíma dagsins, yfirleitt milli klukkan 11 og 15. Þá er UV-geislunin sterkust og hættan á sólbruna mest. Skuggi er góður kostur, en jafnvel þar er mikilvægt að nota sólarvörn og bera á börn reglulega yfir daginn í útiveru.
Með réttum varúðarráðstöfunum geta börn notið sólarinnar á öruggan og skemmtilegan hátt.
Sólarvarnir fyrir börn
Eftir sól
































































