Gjafakassi með vörum úr Men Expert Hydra Energetic herralínunni frá L'Oréal Paris. Inniheldur Wake Up Boost andlitshreinsi og Anti-Tiredness 24H rakakrem.
Settið hentar sérstaklega fyrir eðlilega húð sem á það til að vera þurr og stíf. Rakakremið er með léttri, gelkenndri áferð sem veitir húðinni raka og vinnur gegn fimm þreytumerkjum húðarinnar, meðal annars daufu yfirbragði, þurrki og grófri áferð. Andlitshreinsirinn hreinsar húðina á áhrifaríkan hátt og veitir frískandi tilfinningu. Formúlan inniheldur meðal annars guarana og Cg-vítamín.