Septabene citron og honning
Hálslyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf
Virkt innihaldsefni: Benzýdamín Cetylpyridín
Markaðsleyfishafi: Krka | Skráð: 22. maí, 2022
Septabene munnsogstöflur eru notaðar til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi, munni og tannholdi. Septabene inniheldur virku efnin cetylpyridín og benzýdamín. Cetylpyridín hefur sýklahemjandi virkni og getur einnig virkað gegn sveppum. Benzýdamín hefur staðbundna verkjastillandi og bólgueyðandi virkni. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Munnsogstöflur.
Venjulegar skammtastærðir:
Fulloðnir og unglingar eldri en 12 ára: 1 munnsogstafla á 3-6 klst. fresti, eftir þörfum að hámarki 4 munnsogstöflur á sólarhring.
Börn 6-12 ára: 1 munnsogstafla á 3-6 klst. fresti, eftir þörfum að hámarki 3 munnsogstöflur á sólarhring.
Ekki nota Septabene lengur en í 7 sólarhringa, nema í samráði við lækni.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
15 mínútur.
Verkunartími:
Allt að 3 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Notkun Septabene með mjólk getur dregið úr verkun lyfsins. Ekki á að neyta matar eða drykkjar í a.m.k. eina klukkustund eftir töku lyfsins.
Geymsla:
Geymið í upprunalegum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er einungis ætlað til skammtímanotkunar
Ef tekinn er of stór skammtur:
Skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum.
Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Berkjukrampi | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Erting á meðferðarsvæði | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|||
Ofsakláði | ![]() |
![]() |
![]() |
Milliverkanir
Notkun Septabene strax fyrir eða eftir tannburstun getur dregið úr verkun lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Ekki taka þetta lyf ef þú ert með barn á brjósti nema í samráði við lækni.
Börn:
Ekki má nota lyfið handa börnum yngri en 6 ára.
Akstur:
Septabene hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla.
Annað:
Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.