Plasmalyte
Elektrólýtar | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Elektrólýtar
Markaðsleyfishafi: Baxter | Skráð: 14. september, 2005
Plasmalyte er blanda af elektrólýtum sem er notað til að bæta upp vökvatap af ýmsum ástæðum. Plasmalyte inniheldur natríumklóríð, kalíumklóríð, magnesíumklóríðhexahýdrat, natríumasetatþríhýdrat og natríumglúkonat.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Innrennslislyf.
Venjulegar skammtastærðir:
Læknir eða hjúkrunarfræðingur gefa Plasmalyte. Læknirinn ákveður hversu mikið þú þarft og hvenær þér verður gefið lyfið. Það fer eftir aldri, þyngd, almennu ástandi svo og tilgangi meðferðarinnar og annarri meðferð sem þú færð á sama tíma.
Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Á ekki við.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Læknirinn ákveður hvenær innrennslinu skal lokið.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef þú færð of mikið af Plasmalyte (of mikil vökvagjöf) eða ef það er gefið of hratt getur það valdið eftirfarandi einkennum: bjúgur, náladofi, vöðvaslappleiki, lömun, hjartsláttaróregla, hjartastopp, rugl, öndunarbæling, ógleði, uppköst, húðroði, þorsti, lágþrýstingur, syfja, meðvitundarleysi, blóðsýring, geðsveiflur, þreyta og vöðvakippir. Láttu lækni tafarlaust vita ef þú færð einhver þessara einkenna.
Aukaverkanir
Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Bjúgur á útlimum | ![]() |
![]() |
|||||
Hiti og slappleiki | ![]() |
![]() |
|||||
Hjartsláttartruflanir, verkur fyrir brjósti, krampar | ![]() |
![]() |
|||||
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
||||
Viðbrögð á stungustað (innrennslislyf) | ![]() |
![]() |
|||||
Gæsahúð | ![]() |
![]() |
|||||
Óreglulegur hjartsláttur, vökvasöfnun, mæði. | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Einhver lyf milliverka við Plasmalyte, segðu lækni frá öllum lyfjum sem þú tekur.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með lágan blóðþrýsting eða hægan hjartslátt
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með vöðvaslensfár (myasthenia gravis)
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með bjúg
- þú sért með óeðlilega há gildi kalíums í blóði
- þú sért með basískan blóðvökva
- þú sért með skerta sýrutæmingu í maga
Meðganga:
Plasmalyte má nota á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Plasmalyte má nota meðan á brjóstagjöf stendur.
Börn:
Lyfið má nota á öllum aldri og skammtar eru háðir þyngd og aldri.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.