Differin
Lyf við bólum | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Adapalen
Markaðsleyfishafi: Galderma Nordic | Skráð: 1. júlí, 2001
Virka innihaldsefnið í Differin, adaplen, er A-vítamín líkt efni. Það er notað við vægum eða frekar slæmum bólum (acne) þar sem fílapenslar, litlar bólur og graftarbólur eru áberandi.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Útvortis hlaup.
Venjulegar skammtastærðir:
Hlaupið er borið á hreina og þurra húð í þunnu lagi daglega að kvöldi til.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Það geta liðið allt að 8-12 vikur þar til meðferðin fer að bera árangur.
Verkunartími:
Nákvæmur verkunartími lyfsins er ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki geyma í kæli og það má ekki frjósa.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notkun lyfsins er hætt þegar sjúklingur er orðinn einkennalaus, eða samkvæmt læknisráði.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stórir skammtar geta valdið roða í húð og hún flagnað af við ofskömmtun. Skolaðu lyfið af húðinni. Ef þessi einkenni eru mikil skaltu hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Ætti ekki að vera vandkvæðum háð fyrir utan hættu á aukaverkunum.
Aukaverkanir
Aukaverkanir hverfa þegar notkun lyfsins er hætt. Áhrif lyfsins verða hvorki meiri né koma fyrr fram sé lyfið notað í meira magni.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Aukning gelgjubóla | |||||||
Brunatilfinning | |||||||
Kláði, roði, þurrkur, flögnun |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með exem eða aðra húðsjúkdóma
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.
Brjóstagjöf:
Lyfið má nota samhliða brjóstagjöf.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Eldra fólk:
Lyfið er venjulega ekki notað.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Forðastu sterkt sólarljós og útfjólubláa geisla á meðan lyfið er notað. Varastu að lyfið berist í augu, nef, munn og slímhúðir.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.