Cernevit
Vítamín | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Vítamínblanda
Markaðsleyfishafi: Baxter | Skráð: 31. október, 2001
Cernevit er vítamínviðbót fyrir sjúklinga með næringu í æð og inniheldur 12 vítamín (A-vítamín, B6-vítamín, C-vítamín, B1-vítamín, bíótín, D3-vítamín, B2-vítamín, fólínsýru, E-vítamín, B5-vítamín, B12-vítamín og nikótínamíð.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Stungulyf.
Venjulegar skammtastærðir:
Heilbrigðisstarfsfólk annast gjöf á Cernevit. Lyfið er venjulega gefið í bláæð.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engar upplýsingar liggja fyrir um áhrif Cernevit á mat og drykk.
Geymsla:
Geymið lyfið við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Látið lækninn vita ef fram koma einkenni ofskömmtunar. Einkenni ofskömmtunar má að mestu leyti rekja til ofskömmtunar á A-vítamíni: ógleði, uppköst, höfuðverkur, bólga í sjóntaug, krampi, pirringur, seinkun á almennri húðflögnun, höfuðverkur vegna aukins þrýstings í höfði og aumar eða sársaukafullar bólgur í endum útlima.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar | ![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Milliverkanir
Lyfið gæti milliverkað við önnur lyf og þarf þá að bregðast við milliverkunum milli einstakra vítamína og annarra lyfja eftir því sem við á í hverju tilviki.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með parkinsonsveiki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með há kalsíumgildi í blóði
Meðganga:
Nota má lyfið á meðgöngu. En það þarf að fylgjast vel með til að koma í veg fyrir ofskömmtun vítamína.
Brjóstagjöf:
Notkun er ekki ráðlögð með barn á brjósti vegna magns A-vítamíns.
Börn:
Lyfið er ekki æltað börnum 11 ára og yngri.
Eldra fólk:
Skammtaaðlögun getur verið nauðsynleg.
Akstur:
Ólíklegt er að lyfið hafi áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Engar upplýsingar liggja fyrir um áhrif Cernevit á áfengi.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.