UV-stuðull sýnir hversu sterk útfjólublá geislun sólarinnar er hverju sinni og hversu hratt húðin getur brunnið í sólinni. Því hærri sem stuðullinn er, því mikilvægara er að nota sólarvörn.
Stuðullinn nær frá einum upp í 11+. Þegar stuðullinn er 1-2 er ekki þörf á að verja sig gegn sólargeislun en þegar hann er hærri þarf að verja húðina fyrir sólbruna.
UV er yfirleitt hæst á Íslandi á milli klukkan 11-15 á daginn.