Til þess að hægt sé að virkja netspjall Lyfju þarf að veita leyfi fyrir notkun á tölfræðikökum, þar sem þær eru forsenda þess að spjallið virki rétt.
Virkja netspjall LokaNetverslun
Pinex Junior 125 mg og 250 mg endaþarmsstílar
Pinex Junior er verkjastillandi og hitalækkandi lyf.
Ráðlagður skammtur fyrir börn fer eftir þyngd barnsins.
Börn mega fá 50 mg/kg/dag skipt niður í 3-4 skammta en þó aldrei meira en 4.000 mg á sólarhring.
Dæmi um skammt fyrir börn:
- 10 kg barn má að hámarki fá 500 mg á sólarhring, þ.e. einn 125 mg endaþarmsstíl mest 4 sinnum á sólarhring.
- 20 kg barn má að hámarki fá 1.000 mg á sólarhring, þ.e. einn 250 mg endaþarmsstíl mest 4 sinnum á sólarhring.
- 30 kg barn má að hámarki fá 1.500 mg á sólarhring, þ.e. tvo 250 mg endaþarmsstíla mest 3 sinnum á sólarhring.
Ekki má nota Pinex Junior endaþarmsstíla fyrir börn yngri en 2 ára nema samkvæmt ráði læknis.
Pinex Junior 125 og 250 mg endaþarmsstílar
Pinex Junior inniheldur parasetamól. Skammt handa börnum skal velja með hliðsjón af þyngd barnsins. Varast skal samhliða notkun annarra lyfja sem innihalda einnig parasetamól. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Markaðsleyfishafi er Teva B.V. Umboðsaðili er Teva Pharma Iceland ehf
Útgáfunúmer: PNX-IS-00011